Skip to main content
28. janúar 2022

Fjögur verkefni nemenda HÍ tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands

Fjögur verkefni nemenda HÍ tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nemendur við Háskóla Íslands standa á bak við fjögur af þeim sex verkefnum sem tilnefnd eru til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands í ár. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 3. febrúar nk.

Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2021. Stjórn sjóðsins hefur valið sex öndvegisverkefni en aðeins eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna. 

Verkefnin sem tilnefnd eiga það sameiginlegt að vera vel unnin og frumleg en eru afar ólík innbyrðis og sýna vel þá fjölbreytni sem einkennir verkefni sem sjóðurinn veitir styrki til. Þessi fjölbreytni endurspeglar enn fremur það frjóa og margbreytilega starf og nám sem háskólanemar á Íslandi og íslenskir námsmenn erlendis leggja stund á. 

Eftirfarandi verkefni nemenda Háskóla Íslands eru tilnefnd til verðlaunanna:

Betri gjörgæslumeðferð með gagnasjá

Verkefnið fólst í því að búa til gagnasjá fyrir gjörgæsludeild Landspítalans. Gagnasjáin vinnur gögn úr upplýsingakerfi deildarinnar og birtir myndrænar og tölulegar upplýsingar úr þeim. Með gagnasjánni má fylgjast með framvindu og gangi fjölþættrar, flókinnar og kostnaðarsamrar gjörgæslumeðferðar á kerfisbundinn hátt, leita leiða til að bæta gæði hennar, hanna inngrip og innleiða breytingar á verklagi til að bæta meðferðina. Þá má nota gagnasjána til að spá fyrir um þyngd og umfang meðferða á gjörgæsludeild og auðvelda þannig skipulag og tryggja viðunandi mönnun á deildinni. 

Viðtökur gagnasjárinnar hafa verið mjög góðar og er nú verið að vinna að því að innleiða hana í tölvukerfi Landspítalans. Þá hefur gagnasjáin verið kynnt fyrir gjörgæsluráði Landspítalans og hugbúnaðarfyrirtæki innan heilbrigðisþjónustugeirans. Báðir aðilar hafa sýnt lausninni mikinn áhuga. 

Verkefnið var unnið af Margréti Völu Þórisdóttur og Signýju Kristínu Sigurjónsdóttur, sem eru báðar með BS-gráðu í hagnýttri stærðfræði, og Valgerði Jónsdóttur, BS í rafmagns- og tölvuverkfræði. Leiðbeinendur voru Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við Læknadeild og yfirlæknir á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala, og Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson og Tómas Philip Rúnarsson, prófessorar við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.

Krakkakropp (e. Kiddy Crunch)

Hugsjón aðstandenda verkefnisins var að nýta reynslu sína úr námi til þess að þróa frumgerðir af íslenskum barnamat sem framleiða mætti á ábyrgan hátt með umhverfissjónarmið og hollustu í fyrirrúmi. Lýðheilsa barna er brýnt vandamál en u.þ.b. fjórðungur íslenskra barna mælist yfir kjörþyngd. Mikilvægt er því að bregðast við með hollum og hentugum lausnum fyrir barnafjölskyldur. 

Sem stendur er enginn tilbúinn íslenskur barnamatur fáanlegur og á sama tíma hleypur innflutningur á erlendum barnamat árlega á hundruðum tonna. Á Íslandi er til staðar græn orka, unnin með sjálfbærum hætti, hreint vatn, framúrskarandi hráefni og hverfandi notkun varnarefna við grænmetisframleiðslu. Því höfum við á Íslandi fulla burði til þess að framleiða góðan og heilsusamlegan barnamat fyrir börnin okkar. 

Þá hefur matarsóun gríðarlega mikil áhrif á loftslagsbreytingar, en um 45% grænmetis heimsins er talið fara spillis. Í samstarfi við Sölufélag garðyrkjumanna þróuðu nemendur barnamat úr m.a. grænmeti sem ýmist er of smátt, of stórt, bogið eða brotið. Slíkt grænmeti myndi ekki nýtast í hefðbundnar söluvörur en er að öðru leyti í fullkomnum gæðum og því tilvalið til framleiðslu á maukuðum og þurrkuðum barnamat. Að verkefni loknu stóðu eftir fimm frumgerðir af Krakkakreistum, hentugum barnamat í pokum, og þrjár frumgerðir af Krakkakroppi, barnanasli sem bráðnar í munni. 

Þá hafa nemendur í kjölfar verkefnisins nú stofnað fyrirtækið Sifmar ehf. Fyrirtækið hefur einnig hlotið fleiri styrki, nemendur tekið þátt í viðskipta-og markaðshröðlum og hefur Landsvirkjun fjárfest í fyrirtækinu. Á döfinni hjá Sifmar ehf. er áframhaldandi fjármögnunarferli svo bjóða megi upp á öruggari og umhverfisvænni framleiðslu hér á landi. Það má því með sanni segja að íslensk framleiðsla, sjálfbærni, lýðheilsa barna, spornun gegn matarsóun, jákvæð umhverfisáhrif, landbúnaður og tækniþróun séu allt málefni sem verkefnið snertir og helst í hendur við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. 

Verkefnið var unnið af Vöku Mar Valsdóttur, Sigrúnu Önnu Magnúsdóttur og Arnkeli Arasyni, nemum í matvælafræði. Leiðbeinandi var Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís.

Stelpur diffra

Verkefnið fólst í þróun og uppsetningu á sumarnámsbúðum í stærðfræði fyrir stelpur. Í námsbúðunum var lögð áhersla á fræðilega þjálfun í hinum ýmsu undirstöðugreinum stærðfræðinnar og skoðað hvernig þessar greinar birtast í daglegu lífi. Námsefnið og þær kennslufræðilegu nálganir sem notast var við eru ólíkar því sem flestir nemendur hafa kynnst áður. 

Markmið búðanna var að auka þátttöku stúlkna í heimi stærðfræðinnar en hlutfall kvenkyns nemenda lækkar mikið á hærri menntunarstigum. Í búðunum var lögð sérstök áhersla á sjálfstyrkingu, að skoða stærðfræði í nýju ljósi, að nota stærðfræðina sem verkfæri til að skoða samfélagið og að kynna margar kvenkyns fyrirmyndir innan stærðfræðinnar fyrir þátttakendum. Vonin er einnig að skapa samfélag fyrir stelpur með sérstakan áhuga á stærðfræði. 

Verkefnið var unnið af Nönnu Kristjánsdóttur, nema í stærðfræði, en leiðbeindur hennar voru Anna Helga Jónsdóttir, dósent í stærðfræði, og Bjarnheiður Kristinsdóttir, aðjunkt í stærðfræðimenntun.

Stýring ljósvörpu við rækjuveiðar

Botnvörpur eru veiðarfæri sem mikið eru notuð á Íslandsmiðum og um heim allan til botnfisk-, rækju- og humarveiða. Þær eru dregnar með hafsbotninum sem getur valdið umtalsverðu tjóni á lífríkinu þar og eyðsla eldsneytis er mikil þar sem mikið viðnám er við hafsbotninn. Ljósvarpan frá Optitog er nýtt veiðarfæri sem svífur rétt yfir hafsbotninum og smalar fengnum í netpokann með ljósum. Með þessari aðferð helst hafsbotninn ósnertur og minna viðnám við botn leiðir til minni eyðslu eldsneytis og því minni losun gróðurhúsalofttegunda.

Hafsbotninn er hvorki flatur né sléttur og þarf ljósvarpan því að geta fylgt botninum og veitt í hallandi landslagi. Í verkefninu voru skoðaðar leiðir til þess að auka getu ljósvörpunnar til að vinna í hliðarhalla meðal annars með því prófa mismunandi uppsetningar á togvírum og sérstökum hæðarstýrum í straumtanki. Einnig var kannað hvernig best væri að minnka stærð stýrihylkis ljósvörpunnar og gera það meðfærilegra.

Sýnt var fram á að með breytingum á uppsetningum á togvírum gæti ljósvarpan hallað meira og verið fljótari að snúa sér til að fylgja halla botnsins. Auk þess var sýnt fram á að lögun og staðsetning hæðarstýra hefur umtalsverð áhrif til að auka vægi þeirra. Ásamt því kom í ljós að með nýjum búnaði og þrívíddarprentuðum festingum væri hægt að minnka og létta stýrihylki ljósvörpunnar töluvert. Niðurstöður verkefnisins nýttust við prófanir á frumgerð af ljósvörpu í sjó í desember 2021 og munu nýtast í áframhaldandi prófunum.

Dagur Óskarsson og Kristján Orri Daðason, nemendur í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, unnu verkefnið. Leiðbeinandi var Torfi Þórhallsson lektor við verkfræðideild við Háskólann í Reykjavík en nemendur nutu einnig leiðsagnar starfsfólks Optitogs og Hafrannsóknastofnunar.

Auk þessara fjögur eu verkefnin Kennsluefni í kynja- og hinseginfræðiog Matjurtarækt utandyra fram á vetur, sem nemendur annarra háskóla unnu, einnig tilnefnd til verðlaunanna. Þau verða eins og áður sagði afhent 3. febrúar.

Nánar um verkefnin og verðlaunin
 

Frá Háskólatorgi