Skip to main content

Pólsk fræði - Aukagrein

Pólsk fræði - Aukagrein

Hugvísindasvið

Pólsk fræði

Aukagrein – 60 einingar

Nám í pólskum fræðum er í senn spennandi og áhugavert nám sem veitir innsýn í pólska tungu, menningu og samfélag.

Þetta nám er aukagrein sem er hægt að taka með öðru námi.

Skipulag náms

X

Pólska fyrir byrjendur: Málnotkun I (POL102G)

Þetta námskeið er fyrir alla þá er hafa áhuga á pólsku. Engrar forkunnáttu er krafist þar sem námskeiðið er fyrir algera byrjendur. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál. Nemendur þjálfa talfærni og farið verður yfir mikilvæg málfræðiatriði.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:00. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.

X

Pólska fyrir byrjendur: Málnotkun II (POL103G)

Þetta námskeið er fyrir alla þá er hafa áhuga á pólsku og hafa lokið POL101G Pólska fyrir byrjendur I eða hafa grunnþekkingu á pólsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál. Nemendur þjálfa talfærni og farið verður yfir mikilvæg málfræðiatriði. Forkröfur: Pólska fyrir byrjendur: málnotkun I. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:00.

X

Málfræði, lestur og ritun I (POL104G)

Í þessu námskeiði verður farið ítarlega í pólska málfræði á byrjendastigi og nemendur fá þjálfun í að lesa og rita einfalda texta. Farið verður yfir reglur í beygingarfræði, orðhlutafræði, setningarfræði og stafsetningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í ritun og lesskilningi. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku. Engrar forkunnáttu er krafist.

X

Pólsk menning og samfélag I: Saga Póllands (POL105G)

Í þessu námskeiði fá nemendur yfirlit yfir sögu Póllands allt fram á miðja 20 öld. Farið verður sérstaklega í þá sögulegu atburði sem hafa sett mark sitt á pólska menningu og nemendur kynnast helstu bókmenntaverkum og þeim listamönnum sem mótað hafa pólska þjóðarsál í gegnum aldirnar. Engrar forkunnáttu er krafist og námskeiðið er kennt á ensku.

X

Pólska fyrir byrjendur: Málnotkun III (POL203G)

Þetta námskeið er fyrir alla þá er hafa áhuga á pólsku og hafa lokið Pólska fyrir byrjendur I og Pólska fyrir byrjendur II eða hafa sambærilega þekkingu á pólsku máli. Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmálog farið verður yfir mikilvæg málfræðiatriði.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta vormisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:00. Forkröfur: Pólska fyrir byrjendur: málnotkun II. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.

X

Pólska fyrir byrjendur: Málnotkun IV (POL204G)

Þetta námskeið er fyrir alla þá er hafa áhuga á pólsku og hafa lokið Pólska fyrir byrjendur I, II og III eða hafa sambærilega þekkingu á pólsku máli. Unnið verður með alla færniþætti en sérstök áhersla á talmál og farið verður yfir helstu málfræðiatriði.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta vormisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:00. Forkröfur: Pólska fyrir byrjendur: málnotkun III. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.

X

Málfræði, lestur og ritun II (POL205G)

Í þessu námskeiði sem er framhald af Málfræði, lestur og ritun I, verður áfram fjallað um pólska málfræði og nemendur fá frekari þjálfun í að lesa og rita texta. Farið verður yfir reglur í beygingarfræði, orðhlutafræði, setningarfræði og stafsetningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni bæði í ritun og lesskilningi. Forkröfur: Málfræði, lestur og ritun I. Námskeiðið er kennt á ensku og pólsku.

X

Pólsk menning og samfélag II: Pólland í dag (POL206G)

Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Póllands og menningu frá síðari heimstyrjöld og til dagsins í dag. Umfjöllunarefnið eru saga, stjórnmál og menning (með áherslu á bókmenntir, kvikmyndir og tónlist). Námskeiðið er kennt á ensku.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3.hæð - Sæmundargötu 2

Sími: 525 4400
Netfang: hug@hi.is
Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.

Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér Þjónustuborð á Háskólatorgi. Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni.

Háskóli Íslands - aðalbygging

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.