Skip to main content

Svona velur þú nám

Svona velur þú nám - á vefsíðu Háskóla Íslands
  •  1 

    Settu þér tímamörk

    Hvenær þarft þú að vera búin/n að taka ákvörðun?

    Umsóknarfrestur fyrir grunnnám er til 5. júní fyrir haustmisseri og 30. nóvember fyrir vormisseri. 

  •  2 

    Hvar liggur áhugi þinn og styrkleikar?

    Þú þarft að velta fyrir þér hverju þú hefur áhuga á, hver gildi þín í lífinu eru og hvar færni þín og styrkleikar liggja.

    Ef þú átt erfitt með að átta þig á áhugasviði þínu gæti verið gagnlegt að ræða við náms- og starfsráðgjafa og/eða taka áhugakönnun/styrkleikakönnun.

  •  3 

    Skoðaðu möguleikana

    Kynntu þér námsframboð skólans og skoðaðu mögulegar námsleiðir í námsvalshjólinu okkar.

  •  4 

    Gerðu lista yfir kosti og galla námsleiða

    Þegar þú hefur fundið námsleiðir sem vekja áhuga þinn skaltu gera lista fyrir hverja og eina þeirra. Skráðu kosti og galla þess að velja þessa tilteknu námsleið.

    Fylltu út eyðublaðið um leið og þú ferð í gegnum næstu skref

  •  5 

    Kynntu þér námsleiðina

    Inni á vefsíðum námsleiða er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um námið, til að mynda áherslur, skipulag og framtíðarmöguleika að loknu námi og fleira.

  •  6 

    Kafaðu dýpra

    Skoðaðu hvaða námskeið tilheyra þeim námsleiðum sem þér finnst koma til greina. Í kennsluskrá er listi yfir námskeið sem tilheyra hverri námsleið ásamt lýsingum á öllum námskeiðum.

  •  7 

    Hvað bíður þín í framtíðinni?

    Þó að fyrsta skrefið sé að velja námsleið er gagnlegt að horfa fram á veginn og skoða möguleg störf að loknu námi.

    Skoðaðu upplýsingar um atvinnumöguleika og umsagnir nemenda á síðu námsleiðarinnar. Við hvað starfar fólk að loknu námi á þessu sviði? Hvernig er staðan á vinnumarkaði í þessari grein?

    Á vefsíðu Næsta skrefs er fjöldi starfslýsinga sem gagnlegt er að kynna sér í ferlinu. 

  •  8 

    Hvernig er líf háskólanemans?

    Kynntu þér lífið í Háskóla Íslands og þá þjónustu sem er í boði fyrir nemendur. Einnig er tilvalið að kynna sér fjörugt starf nemendafélaga í þeim námsleiðum sem þú ert að skoða.

Þegar þú hefur farið í gegnum ofangreind skref skaltu spyrja þig eftirfarandi spurninga:

  • Hvernig er jafnvægið á milli kosta og galla í þeim námsleiðum sem ég er að skoða?
  • Hvaða spurningum er ósvarað hjá mér?
  • Hvað er líkt og hvað er ólíkt með þeim námsleiðum sem vekja áhuga minn?
  • Gæti verið gagnlegt fyrir mig að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa?

Mörgum reynist erfitt að velja námsleið í háskóla. Um mikilvæga ákvörðun er að ræða en það þarf ekki að hugsa námsleið sem endanlegt val fyrir lífið.

Allar leiðir í grunnnámi bjóða upp á fjölbreytta möguleika í framhaldsnámi.  Nemendur öðlast ákveðna þekkingu og færni í öllu námi. Í mörgum tilfellum er um að ræða færni sem nýtist í fjölbreyttum störfum og verkefnum.

Ef þú gefur þér góðan tíma til þess að taka ákvörðun um nám og nálgast ferlið með opnum huga þá er líklegra að ákvörðun þín verði farsæl.

Sæktu um hér

Gagnlegir tenglar