Skip to main content

Alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun

Alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun

Félagsvísindasvið

Alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun

MA – 90 einingar

Í meistanámi í alþjóðaviðskiptum og verkefnastjórnun er lögð áhersla á stjórnun alþjóðlegra verkefna og á umhverfi alþjóðlegra skipulagheilda.

Námið er alfarið kennt á ensku.

Skipulag náms

X

Alþjóðleg forysta (VIÐ1AFF)

Alþjóðleg forysta þróar hæfni nemenda til að leiða og taka ábyrgar ákvarðanir í fjölþjóðlegu og þverþjóðlegu samhengi. Námskeiðið fjallar gagnrýnið um helstu kenningar og líkön alþjóðlegrar forystu, ber forsendur þeirra saman og beitir þeim á flókin skipulagsumhverfi mótuð af menningu og stofnanakerfum. Nemendur greina þvermenningarleg og önnur áhrif sem hafa áhrif á starfsemi alþjóðlegra samtaka og læra að hanna gagnreyndar aðferðir til hagsmunatengsla og ábyrgra ákvarðana.

Með fjölmenningarlegum hermileikjum og teymisverkefnum æfa nemendur háþróaða samskipta- og teymisforystu — að aðlaga forystustíl út frá endurgjöf, byggja upp einkennandi, árangursrík og innihaldsrík teymi og stjórna ágreiningi yfir landamæri.

X

Árangur verkefna og eftirlit (VIÐ1AGF)

Árangursstjórnun er  mikilvægur hluti stofnanna og verkefna. Hún tryggir að aðgerðir séu í takt við stefnumótandi áherslur. Í þessu námskeiði læra nemendur að beita margskonar aðferðum í árangursstjórnun, öðlast hæfni í eftirliti verkefna og skilja mikilvægi árangursstjórnunar þannig að stefnumótandi markmið stofnanna náist.

Námskeiðið byggir á raundæmum (e. Case studies) og verkefnum sem fara fram í kennslustund. Þannig kynnast nemendur, eins og mögulegt er í kennslustofu, raunverulegum aðstæðum þar sem árangursstjórnun nýtist til að styðja ákvarðanatöku innan stofnanna.

Námskeiðið fylgir blönduðu námsformi. Hluti námskeiðsins er kenndur í netnámi, nemendur geta horft á fyrirlestra þegar þeim hentar, þó eigi síðar en fram kemur í kennsluáætlun.
Hluti námskeiðsins fer fram í  vinnustofum sem verða haldnar  á staðnum og verður mætingarskylda á vinnustofurnar. Athugið að vinnustofur þessar nema allt að 70% af lokaeinkunn.

X

Alþjóðleg verkefni og verkefnasöfn (VIÐ277F)

Í námskeiðinu er lögð áhersla á alþjóðleg verkefni og stjórnun verkefnasafna. Kafað er dýpra í þætti sem fjallað er um í Aðferðarfræði verkefnastjórnunar varðandi alþjóðleg verkefni og verkefnasöfn. Einn af áhersluþáttunum er stjórnun margra verkefna samtímis, en það felur í sér tvö skyld viðfangsefni, annars vegar stjórnun eignasafna (e. project portfolio management, program management) og hins vegar verkefnastofu (e. project management office). Annar áhersluþáttur er stjórnun alþjóðlega verkefna eða verkefnasafna í alþjóðlegum fyrirtækjum. Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur vinni saman að raunverkefni og kynnist verkefnastjórnun í íslensku atvinnulífi.

Námskeiðið fylgir blönduðu námsformi. Hluti námskeiðsins er kenndur í netnámi, nemendur geta horft á fyrirlestra þegar þeim hentar, þó eigi síðar en fram kemur í kennsluáætlun.
Hluti námskeiðsins fer fram í  vinnustofum sem verða haldnar  á staðnum og verður mætingarskylda á vinnustofurnar. 

X

Alþjóðaviðskipti (VIÐ2A7F)

Í námskeiðinu verður fjallað um alþjóðavæðingu fyrirtækja, alþjóðlegt viðskiptaumhverfi, stefnumótun alþjóðafyrirtækja, samskipti í ólíkum menningarheimum, og annað sem tengist alþjóðlegum viðskiptum. Notaðar verða dæmisögur og greinar úr viðurkenndum tímaritum og nemendur munu vinna verklegar æfigar og tímaverkefni, taka þátt í umræðum um raundæmi og fleira. Í námskeiðinu verður gert ráð fyrir mikilli virkni nemenda í umræðum og verður námskeiðið haldið á ensku.

X

Eigindleg aðferðafræði (STJ203F)

Qualitative Methods is a graduate course that provides students with an introduction to some of the most commonly used qualitative methods and methodological tools in political science. The main focus in the course is on case studies (including process tracing) and various tools and techniques used within case studies, e.g., interviewing, focus groups, and qualitative content analysis. One part of the course is also dedicated to discourse analysis. The course begins with a very brief introduction to philosophy of science and outlines basic ontological, epistemological and methodological issues in the social sciences. Students will gain a deeper understanding of the philosophical underpinnings, assumptions and ambitions of the different methods, but they will also gain practical experience as to the design and execution of research within the different traditions.

The course design aims to stimulate active student participation. Students are expected to have done the mandatory reading for each day and to be ready to participate in group work and discussions in class. The course features two distinct types of classes, specifically lecture & discussion classes and workshops. Nine of the thirteen classes are in the form of lecture & discussion classes and will be divided into two parts: a lecture by the lecturer (2 x approx. 40 minutes) and a student-led discussion session, consisting of 20 minutes of group work and 20 minutes of general discussion. The remaining four sessions are taught in the form of workshops. For these, the class will be divided into two groups (A and B) at the beginning of the semester. The workshop for group A will take place from 10:00 to 11:00, the workshop for group B from 11:15 to 12:15 on the day in question. In these workshops, students will work on practical examples connected to the respective topics of the day.

X

Eigindleg aðferðafræði (VIÐ2A4F)

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

X

MA ritgerð (AVS001L)

Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar.

Ritgerðin skal vera 30 einingar og kynna nemendur niðurstöður rannsókna sinna.

Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MA ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
Æski stúdent þess að MA ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

Umsókn um lokun meistararitgerða.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hvað segja nemendur?

Danielle Nabintu Zaluke
Renata Alves dos Santos, Alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun, MA
Danielle Nabintu Zaluke
Alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun, MA

Mér fannst námskeiðin vel uppbyggð, það var skýr framvinda þar sem námskeiðin reyndust góður undirbúningur fyrir framhaldið í námsgreininni. Kennararnir voru frábærir og fjölbreyttir kennsluhættir héldu öllum virkum í tímum og gáfu okkur tækifæri til að sýna fram á kunnáttu okkar á mismunandi vegu.

Renata Alves dos Santos
Alþjóðaviðskipti og verkefnastjórnun, MA

Ég er með bakgrunn í verkefnisstjórnun í upplýsingatækni og valdi þetta nám til þess að auka færni mína í að stjórna alþjóðlegum verkefnum. Hápunkturinn var að verja einu misseri erlendis við samstarfsháskóla í Ástralíu. Ég var einnig í starfsnámi hjá alþjóðlegu tölvufyrirtæki á Íslandi. Þessi tækifæri hafa eflt mig fræðilega og líka gert mér kleift að stækka tengslanet mitt. Þegar ég lauk meistaraprófi komst ég inn í doktorsnámið í viðskiptafræðinni sem styrkti mig faglega og opnaði ný atvinnutækifæri.

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Viðskiptafræðideild á samfélagsmiðlum

 Instagram    Facebook

Gimli, Háskóli Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.