Skip to main content

Austur-Asíufræði

Austur-Asíufræði

Hugvísindasvið

Austur-Asíufræði

Aukagrein – 60 einingar

Austur-Asíufræði er þverfagleg fræðileg námsgrein sem býður upp á margvísleg námskeið um svæði Austur-Asíu, þá einkum Kína og Japan. Hún hentar þeim sem hyggjast kynna sér nánar samfélög og menningu Austur-Asíu án þess að vilja leggja stund á tungumálanám.

Skipulag náms

X

Kína nútímans: Samfélag, stjórnmál og efnahagur (KÍN101G)

KENNT Í FJARKENNSLU HAUST 2023 (sérstök nemendaviðtöl með kennara til að efla betri kynni)

Um er að ræða yfirlitsnámskeið um helstu áhrifaþætti innan kínversks samfélags og efnahags með áherslu á afleiðingar opnunarstefnunnar eftir 1978. Farið verður yfir landfræðilegar aðstæður, þ. á m. helstu borgir, fylkjaskipan, nágrannalönd, landræktarsvæði, ár og fjallgarða. Veitt verður yfirlit yfir efnahagsþróun undanfarinna áratuga, helstu vandamál Kína nútímans, þ. á m. orkuskort, umhverfisvandamál, lýðfræði, alþjóðatengsl og stjórnmál. Einnig verður vikið að stöðu fjölskyldunnar og kvenna, mannréttindi og umhverfismál. Hong Kong og Tævan eru einnig sértstaklega til umfjöllunar. Til að skerpa á skilningi nemenda á Kína samtímans verður horft á klippur úr nýlegum kínverskum heimildamyndum sem taka á ýmsum þáttum hinna miklu umbreytinga sem orðið hafa á kínversku samfélaginu undanfarna áratugi. 

X

Japanskt þjóðfélag og menning I (JAP105G)

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í japanskt þjóðfélag og menningu bæði fyrr og nú. Viðfangsefni námskeiðsins eru m.a. sjálfsmynd, menntun, trúarbrögð, hefðir og listir í Japan.

X

Japanskt þjóðfélag og menning II (JAP106G)

Markmið námskeiðsins er að kynna helstu einkenni japansks þjóðfélags í dag. Rætt verður um ýmsar hliðar þjóðfélagsins, m.a. frá sjónarhorni menntakerfis, kynjahlutverka og fjölskyldu, fyrirtækjamenningar, stjórnmála og dægurmenningar. Fyrirlestrar skiptast niður á kennara eftir sérsviðum.

X

Japanskar nútímabókmenntir (JAP305G)

Nemendum eru kynntar stefnur og straumar í japönskum nútímabókmenntum, þar sem einkum er horft á þróun skáldskapar. Lesefni námskeiðsins eru þýðingar á ensku á smásögum og köflum úr stærri verkum frá Meiji tímabilinu til dagsins í dag. Áhersla er lögð á 20. öldina. Í tímum verða haldnir kynningarfyrirlestrar á lesefni og umræður um valda texta fara fram í kjölfarið.

X

Japanskar kvikmyndir (JAP107G)

Fjallað er um japanskar kvikmyndir frá upphafi til dagsins í dag með aðaláherslu á „klassíska tímabilið“ 1950-70 og leikstjóra á borð við Kurosawa, Ozu, Mizoguchi og fleiri. Fjallað verður um bakgrunn þekktra kvikmynda og efni þeirra greint til sjá hvernig japönsk menning, saga og þjóðfélag endurspeglast í þeim.

Skoðaðar verða valdar myndir eftir fyrrnefndra leikstjóra og einnig nýrri verk.

Kennt er á ensku.

X

Japönsk saga (JAP208G)

Á námskeiðinu verður fjallað um sögu Japans frá forsögulegum tíma til samtímans. Saga Japans er bæði löng og viðburðarík og því verður stiklað á stóru í þessu yfirlitsnámskeiði, en lögð verður áhersla á þá samfélagslegu þætti sem hafa mótað Japan eins og við þekkjum það í dag. Unnið verður jafnt og þétt að ýmsum minni verkefnum á misserinu en fyrirlestrar nemenda skipa einnig mikilvægan sess á misserinu. Í rannsóknarverkefni munu nemendur fá tækifæri til að kynna sér ítarlega efni að eigin vali sem tengist viðfangsefnum námskeiðsins.

X

Saga Kína I. Frá fornöld til um 1600 (KÍN108G, SAG336GKÍN102G)

Þetta námskeið fjallar um sögu Kína frá goðsögulegum tíma Xia-veldisins á þriðja árþúsundi f.Kr. fram að 1600. Varpað verður ljósi á jafnt þær breytur sem varðað hafa mestu um mótun kínverskrar menningar sem einstaka viðburði í pólítískri og samfélagslegri framvindu þjóðarinnar. Veitt verður yfirlit yfir tilkomu og þróun áhrifamestu kínversku trúarbragða- og hugmyndakerfa, einkum konfúsíanisma, daoisma og búddisma. Samskipti Kínverja við aðrar þjóðir verða í öndvegi.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hvað segja nemendur?

Þórhildur Helgudóttir
Þórhildur Helgudóttir
Sagnfræði með Austur-Asíufræði BA-nám

Ég tók sagnfræði sem aðalfag en hafði alltaf hug á því að víkka sjóndeildarhringinn og til þess reyndust Austur-Asíufræði fullkomið val. Þvermenningarlæsi verður sífellt mikilvægara í heiminum í dag, bæði vegna hnattvæðingar og þess vægis sem fólgið er í að öðlast nýja sýn á samfélög jarðar, bæði kunnugleg og framandleg. Austur-Asíufræðin við HÍ bjóða upp á góðan fræðigrunn um löndin innan þessa svæðis og opna einnig margar dyr, til dæmis fyrir skiptinám og frekari ferðalög. Námið er fjölbreytt, sveigjanlegt og er kennt af fólki sem býr bæði yfir sérfræðiþekkingu og mikilli virðingu fyrir menningu og sögu þessara landa. Ég mæli eindregið með náminu fyrir alla sem hafa áhuga á löndum Austur-Asíu, umsvifum þeirra á alþjóðavísu og hafa áhuga á að kynnast þeim á djúpstæðari máta.

Hafðu samband

Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3.hæð - Sæmundargötu 2

Sími: 525 4400
Netfang: hug@hi.is
Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.

Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér Þjónustuborð á Háskólatorgi. Hægt er að nálgast upplýsingar í netspjalli hér á síðunni.

Fylgstu með Hugvísindasviði:

Háskóli Íslands - aðalbygging

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.