Skip to main content

Fundargerð háskólaráðs 16. september 2021

9/2021
HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR

Ár 2021, fimmtudaginn 16. september var haldinn rafrænn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.00.

Fundinn sátu Jón Atli Benediktsson, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Einar Sveinbjörnsson, Guðvarður Már Gunnlaugsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Isabel Alejandra Díaz, Jessý Rún Jónsdóttir, Jón Ólafsson, Ólafur Pétur Pálsson og Siv Friðleifsdóttir. Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð. Vigdís Jakobsdóttir boðaði forföll.

1.    Setning fundar. [Kl. 13.00.]
Rektor setti fundinn og greindi frá því að engin athugasemd hefði borist við fundargerð síðasta fundar og hefði hún því skoðast samþykkt og verið birt á háskólavefnum. Þá spurði rektor hvort einhver gerði athugasemd við dagskrá fundarins og var svo ekki. Jafnframt spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá og var svo ekki.

2.    Kynning á skipulagi, starfsemi, rekstri, áherslumálum og framtíðarsýn valinna skipulagseininga. [Kynning og umræða. Kl. 13.05-15.15]

a.    Félagsstofnun stúdenta. Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri. [Kl. 13.05-13.35]
Inn á fundinn kom Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, og gerði grein fyrir starfsemi og áherslumálum sjálfseignarstofnunarinnar. Málið var rætt og svaraði Guðrún spurningum.

Guðrún vék af fundi.

b.    Menntavísindasvið. Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti fræðasviðsins. [Kl. 13.35-14.05]
Inn á fundinn kom Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs, og gerði grein fyrir starfsemi, áherslumálum og framtíðarsýn fræðasviðsins. Málið var rætt og svaraði Kolbrún spurningum.

Kolbrún vék af fundi.

Fundarhlé. [Kl. 14.05-14.15]

c.    Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Sigurður Magnús Garðarsson, forseti fræðasviðsins. [Kl. 14.15-14.45]
Inn á fundinn kom Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, og gerði grein fyrir starfsemi, áherslumálum og framtíðarsýn fræðasviðsins. Málið var rætt og svaraði Sigurður Magnús spurningum.

Sigurður Magnús vék af fundi.

d.    Stúdentaráð Háskóla Íslands. Isabel Alejandra Díaz, forseti ráðsins. [Kl. 14.45-15.15]
Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, gerði grein fyrir starfsemi og áherslumálum ráðsins. Málið var rætt og svaraði Isabel spurningum.

Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15.15.