Skip to main content
14. mars 2022

Nýsköpunarstofa menntunar stofnuð

Nýsköpunarstofa menntunar stofnuð - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands og Reykjavíkurborg undirrituðu nýverið samstarfssamning um stofnun og rekstur Nýsköpunarstofu menntunar. Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Skóla- og frístundasvið (SFS) Reykjavíkurborgar fara með framkvæmd samningsins. Við sama tækifæri endurnýjuðu borgin og háskólinn samstarfssamning um starfsþróun, rannsóknir og nýsköpun til þriggja ára. Stofan verður starfrækt á Vísindagörðum Háskóla Íslands og mun styðja við nýsköpun á sviði menntunar, þróun hugmynda og aðferða sem tengjast formlegu og óformlegu námsumhverfi, hæfniþróun, nýjum leiðum í námi og kennslu, stafrænu námsumhverfi og menntun til framtíðar.
 
Nýsköpunarstofa menntunar mun hafa aðsetur í Mýrinni, nýsköpunarsetri háskólans í Grósku. Markmið Nýsköpunarstofunnar er að leiða saman krafta frumkvöðla úr menntakerfinu, fræðasamfélaginu og fyrirtækjum landsins og skapa fjölbreyttan vettvang til að móta og þróa nýjar aðferðir á sviði náms og menntunar. Stofan mun virkja tengslanet fagfólks, stofnana og frumkvöðla til að innleiða, prófa og meta árangur af nýjum aðferðum á sviði menntunar. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands segist fagna þessu framtaki. „Hlutverk háskóla er meðal annars að vinna með samfélagi og atvinnulífi að nýsköpun á öllum sviðum samfélagsins. Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands hafa saman skapað einstakan vettvang hér í Vísindagörðum til að efla vísindin, miðlun þeirra og nýsköpun. Menntun og fagþróun í menntakerfum er forsenda þess að einstaklingar og samfélög geti tekist á við flóknar áskoranir, ný störf og nýja hæfni. Þess vegna skiptir miklu að leiða saman krafta hagaðila til að efla nýsköpun á sviði menntunar.“

Í því felst að skipuleggja reglulega viðburði þar sem nýsköpun á sviði menntunar er kynnt og rædd. Unnið verður að því tengja kennara og nemendur í menntavísindum, listum, hugverkum, iðn- og tæknimenntun við frumkvöðlaumhverfið, hraðla og menntakeppnir. Sett verður á laggirnar öflug vefsíða í nafni stofunnar þar sem verður hægt að finna náms- og stuðningsefni um nýsköpunar- og frumkvöðlamennt, framtíðartorg - stafrænan umræðuvettvang um framtíð menntunar og hæfniþróun, verkfærakistu og almenna miðlun um nýsköpun menntunar auk styrkjamöguleika. 

Forgangsverkefni tímabilið 2022 – 2025 er að leiða saman hóp sérfræðinga, fræðafólks, kennara og fagfólks til að greina áskoranir og vinna að nýsköpunarverkefnum tengdum þeim samfélags-, umhverfis- og tæknibreytingum sem hafa raunveruleg áhrif á menntun barna, starfsumhverfi kennara og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi.

Nýsköpunarstofa menntunar mun njóta krafta bakhjarla sem koma að stefnumótun og framkvæmd verkefna og munu skipa fulltrúa í ráðgjafahóp stofunnar. „Til stendur að stofna til breiðrar samfylkingar um nýsköpun á sviði menntunar með tilstuðlan öflugra bakhjarla úr atvinnulífi, háskólum landsins, þekkingarfyrirtækjum, fagfélögum og sveitarfélögum landsins,“ segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs og einn af stofnendum stofunnar. „Samfélög um allan heim eru að gera sér sífellt betri grein fyrir mikilvægi þess að styðja við rannsóknir, þróun og nýsköpun á sviði menntunar. Markmiðið er ekki síst að virkja hugmyndaauðgi og reynsluheim háskólanema, fagfólks, sérfræðinga og frumkvöðla til að þróa nýjar leiðir og nálganir í hinu formlega menntakerfi og á vettvangi óformlegs náms.“

Við þetta tilefni undirrituðu fulltrúar Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands undirrituðu einnig undir samning um áframhaldandi samvinnu um samfélagslega viðskiptahraðalinn Snjallræði

Frá undirritun samninganna þriggja. Frá vinstri: Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.