Skip to main content
4. september 2019

Forseti Indlands flytur erindi í Háskóla Íslands

Forseti Indlands flytur erindi í Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Shri Ram Nath Kovind, forseti Indlands, flytur erindi í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands þriðjudaginn 10. september kl. 11.45.

Forseti Indlands er væntanlegur hingað til lands í opinbera heimsókn í boði forseta Íslands dagana 10. og 11. september nk. en þetta er fyrsta heimsókn forseta Indlands til norræns ríkis.
Yfirskrift erindis forseta Indlands í Háskóla Íslands er „Indland og Ísland fyrir græna plánetu“ (India-Iceland for a Green Planet). 

Shri Ram Nath Kovind var kjörinn forseti Indlands árið 2017 og er fjórtándi forseti landsins. Hann var ríkisstjóri í héraðinu Bihar 2015-2017 og þingmaður í efri deild indverska þingsins á árunum 1994-2006. Forsetinn er lögfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur áður en hann hóf afskipti af stjórnmálum fyrir aldarfjórðungi.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, kynnir forseta Indlands og Ólafur Ragnar Grímsson, fv. forseti Íslands, flytur lokaorð.

Erindið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.
 

"Shri Ram Nath Kovind, forseti Indlands"