Skip to main content

Lýðræði og lýðræðisþróun: Svanur Kristjánsson sjötugur

Lýðræði og lýðræðisþróun: Svanur Kristjánsson sjötugur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. janúar 2018 14:00 til 17:00
Hvar 

Oddi

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Lýðræði og lýðræðisþróun: Svanur Kristjánsson sjötugur.

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og Félag stjórnmálafræðinga bjóða til málþings í tilefni starfsloka Svans Kristjánssonar við Háskóla Íslands. 

Svanur Kristjánsson hefur á sínum starfsferli birt ógrynni rannsókna, látið til sín taka í opinberri umræðu um lýðræði og stjórnmál, og kennt þeim fjölmörgu nemendum sem hafa farið í gegnum stjórnmálafræði um lýðræði, vald, stjórnmálaflokka, jafnrétti, lögmæti, ábyrgð kjörinna valdhafa og lýðræðisþróun, svo fátt eitt sé nefnt. 

Málþingið verður haldið föstudaginn 19. Janúar kl. 14-17 í Odda 101 og eru allir hvattir til að mæta.

Dagskrá:
Þorvaldur Gylfason - Lýðræði lifir á ljósi.
Ragnar Aðalsteinsson - Geta ákvæði í stjórnarskrá eflt lýðræðið?
Þórólfur Þórlindsson - Í víðara samhengi: Nokkur orð um gildi kenninga.
Eva H. Önnudóttir - Lýðræði og stjórnmál.
Svanur Kristjánsson - Leitin að sannleikanum og íslensk stjórnmálafræði.

Guðmundur Ólafsson fer með fundarstjórn.

Yfirlit yfir fræðistörf Svans má nálgast á https://goo.gl/myjzVs 

Að málþingi loknu verður móttaka í Odda

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir