Skip to main content

Hermann Pálsson, aldarminning

Hermann Pálsson, aldarminning - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. maí 2021 16:00 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ráðstefna haldin af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Auðarsalur, Veröld, Hús Vigdísar v/ Suðurgötu (smelltu hér til að fylgjast með streymi).

Miðvikudag 26. maí frá 16:00 til 18:00

Hermann Pálsson, prófessor við háskólann í Edinborg, var einn af áhrifa- og afkastamestu fræðimönnum á sviði íslenskra fræða á seinni hluta 20. aldar. Bækur hans skipta tugum og greinar hundruðum. Hann var einnig mikilvirkur þýðandi íslenskra fornbókmennta á enska tungu. Í gegnum þær kynntust fleiri kynslóðir lesenda um heim allan fornsögunum.

Í tilefni af því að öld er liðin frá fæðingu Hermanns leggja Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum saman krafta sína og efna til ráðstefnu í minningu hans. Þar munu vinir Hermanns og kollegar fjalla um verk hans en líka um manninn.

Ráðstefnan er öllum opin og þátttaka er ókeypis.

(Smellið hér til að hlusta á viðtal við Torfa H. Tulinius um Hermann og ráðstefnuna).

Dagskrá:

  • Eva María Jónsdóttir: Ráðstefnan sett.
  • Vésteinn Ólason: Útlagar.
  • Ásdís Egilsdóttir: Sagan okkar Hermanns.
  • Magnús Hannesson: Af Sauðanesætt.
  • Guðrún Nordal: "Var fagurt um að litast".
  • Ármann Jakobsson: Um völvur í forntextum.
  • Aðalheiður Guðmundsdóttir: Bardaginn eilífi á Bretlandseyjum.
  • Örnólfur Thorsson: "Margt er öðru líkt" - Hermann Pálsson og Grettla.
  • Annette Lassen: Morð, hauskúpur og mannát – eða lærð vinnubrögð edduhöfunda.
  • Guðmundur Andri Thorsson: “Við brottför þína brugðu fjöllin lit”
  • Torfi H. Tulinius: Sagnaskemmtun, ritmenning og veisluhöld.
  • Gísli Sigurðsson: Summer of Love og upphaf fornsagnaþinga.

Hermann Pálsson, prófessor við háskólann í Edinborg

Hermann Pálsson, aldarminning