Skip to main content

Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna

Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. janúar 2018 12:00 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Slóð fyrir streymi verður efst í viðburðinum.
Opið hús og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.  

Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild heldur erindi um samspil kvíða og hegðunarvanda barna

Opið hús og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir  

Bein útsending frá erindinu.

Undanfarið hefur mikið verið rætt um kvíða meðal barna og unglinga á Íslandi og virðast skimanir benda til þess að tíðni hans sé að aukast. Í erindinu verður fjallað um birtingarmynd kvíða meðal barna og unglinga og hvernig foreldrar geta tekist á við þennan vanda heima fyrir. Einnig verður rætt um tengsl kvíða við hegðunarvanda, hvernig einkenni kvíða eru oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja og hvers vegna börn með ADHD eru í sérstakri áhættu til að þróa með sér kvíðaraskanir.

Fyrirlestur Urðar er sá fyrsti í nýrri fyrirlestraröð sem Háskóli Íslands hleypir af stokkunum á árinu 2018 og ber heitið Háskólinn og samfélagið. Viðfangsefni fyrirlestraraðarinnar verða af ýmsum toga en eiga það sameiginlegt að hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni síðustu misseri. Í fyrstu fræðslufundaröðinni verður velferð barna og ungmenna í brennidepli. 

 

Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild fjallar um birtingarmynd kvíða meðal barna og unglinga og hvernig foreldrar geta tekist á við þennan vanda heima fyrir. Urður ræðir einnig um tengsl kvíða við hegðunarvanda, hvernig einkenni kvíða eru oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja og hvers vegna börn með ADHD eru í sérstakri áhættu til að þróa með sér kvíðaraskanir.

Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna