Skip to main content

Doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild: Skafti Ingimarsson

Doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild: Skafti Ingimarsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. maí 2018 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðvikudaginn 30. maí næstkomandi fer fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þá ver Skafti Ingimarsson doktorsritgerð sína í sagnfræði sem nefnist Íslenskir kommúnistar og sósíalistar: Flokksstarf, félagsgerð og stjórnmálabarátta 1918-1968. Andmælendur verða Rósa Magnúsdóttir, dósent við Árósaháskóla og Sumarliði Ísleifsson, lektor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands.

Doktorsritgerðin er unnin undir leiðsögn Vals Ingimundarsonar, prófessors í sagnfræði. Aðrir í doktorsnefnd eru Ragnheiður Kristjánsdóttir, dósent í sagnfræði, og Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki.

Svavar Hrafn Svavarsson, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnar athöfninni sem hefst kl. 13:00.

Um rannsóknina

Verkefnið fjallar um upphaf og þróun kommúnistahreyfingarinnar á Íslandi á tímabilinu 1918–1968. Saga hreyfingarinnar er skoðuð í ljósi íslenskrar þjóðfélagsþróunar og alþjóðlegra hugmyndastrauma. Kannað er úr hvaða jarðvegi hreyfingin var sprottin, skoðað hverjir studdu hana og hvers vegna og sýnt hvernig fámennum hópi íslenskra kommúnista tókst að gera flokk sinn að fjöldahreyfingu, ólíkt því sem gerðist í flestum nágrannalöndum. Rannsóknin beinist einkum að skipulagi og daglegu starfi íslenskra kommúnista og sósíalista, ólíkt flestum fyrri rannsóknum, sem leggja megináherslu á tengsl kommúnista og sósíalista við Sovétríkin á millistríðs- og kaldastríðsárunum. Hér vegur þyngst viðamikil lýðfræðileg greining á rúmlega 2900 skráðum félögum í Kommúnistaflokki Íslands (1930–1938) og Sameiningarflokki alþýðu – Sósíalistaflokknum (1938–1968). Greiningin er hin fyrsta sinnar tegundar á félagaskrám íslenskra stjórnmálaflokka og byggir á frumheimildum sem varpa nýju ljósi á samfélagslega stöðu flokksmanna og  félagssamsetningu flokkanna tveggja. Verkefnið er hluti af verkalýðs- og stjórnmálasögu Evrópu, sem hefur útbreiðslu jafnaðarstefnu og kommúnisma á 19. og 20. öld að viðfangsefni, og er ætlað að auka þekkingu á sviði stjórnmála- og félagssögu á Íslandi á 20. öld.

Doktorsefnið

Skafti Ingimarsson lauk B.A.-prófi í sagnfræði við Háskóla Íslands árið 2004, prófi í uppeldis- og kennslufræði við Háskólann á Akureyri árið 2004 og M.Litt-prófi í sagnfræði við University of St Andrews (Centre for Russian, Soviet and Central and Eastern European Studies) árið 2007. Meðan á rannsókninni stóð hlaut hann styrk úr háskólasjóði Eimskipafélagsins og úr minningarsjóði Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi forsætisráðherra. Skafti var stundakennari á sagnfræðibraut við Háskóla Íslands árin 2008–2009 og 2011–2012. Hann var formaður AkureyrarAkademíunnar árin 2013–2015. Skafti er kennari við Lundarskóla á Akureyri.

Skafti Ingimarsson

Doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild: Skafti Ingimarsson