Skip to main content

Doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild: Anna Katharina Heiniger

Doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild: Anna Katharina Heiniger  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. maí 2018 9:00 til 12:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 11. maí næstkomandi fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild. Þá ver Anna Katharina Heiniger doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum sem nefnist On the Threshold. Experiencing Liminality in the Íslendingasögur, eða Á þröskuldinum. Um mörk og mæri í Íslendingasögum. Andmælendur verða Alison Finlay og Stefanie Gropper.

Doktorsritgerðin er unnin undir leiðsögn Torfa Tulinius, prófessors í íslenskum miðaldafræðum og aðrir í doktorsnefnd eru Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Jürg Glauser.

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni sem fram fer í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 9:00.

Um doktorsrannsóknina

Í þessari rannsókn er kannað hvernig má beita hugtakinu liminality, sem ættað er úr mannfræði, á Íslendingasögur og hvað sú þverfaglega umræða, sem er án fordæma, getur lagt af mörkum til betri skilnings á sögunum sjálfum og sögulegu samhengi þeirra. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar byggir á verkum mannfræðinganna Arnold van Gennep (1873-1957) og Victor W. Turner (1920-1983) sem kynnti til sögunnar, skilgreindi og þróaði hugtakið liminality sem táknar það að vera tímabundið staddur á milli tveggja félagslegra sviða. 

Að beita hugtakinu á Íslendingasögur er ýmsum vandkvæðum bundið, ekki síst vegna þess hve loðið það er en einnig vegna bilsins sem þarf að brúa milli nútímamannfræði og miðaldabókmennta. Aðeins nákvæmar túlkanir á einstökum sagnaþáttum leiða í ljós hvort finna megi dæmi um liminality og einnig hvernig megi dýpka skilninginn á hugtakinu í bókmenntalegu samhengi. 

Anna Katharina Heiniger.

Doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild: Anna Katharina Heiniger