Skip to main content

Doktorsvörn í menntavísindum: Bergljót Þrastardóttir

Doktorsvörn í menntavísindum: Bergljót Þrastardóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. október 2023 9:30 til 13:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Bergljót Þrastardóttir ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands:

Making Sense of Gender in Compulsory School Practices in Iceland

Kyngervi í grunnskólastarfi á Íslandi

Vörnin fer fram miðvikudaginn 18. október kl. 09:30 í Hátíðarsal Háskóla Íslands og verður einnig streymt

Hlekkur á streymi hér

Andmælendur eru dr. Carolyn Jackson og dr. Claudia Mitchell

Aðalleiðbeinandi var dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og meðleiðbeinandi dr. Steinunn Helga Lárusdóttir prófessor emeritus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Auk þeirra sat í doktorsnefnd dr. Sirpa Lappalainen, prófessor við University of Eastern Finland og dr. Jón Ingvar Kjaran prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Dr. Berglind Rós Magnúsdóttir forseti Deildar menntunar og margbreytileika stjórnar athöfninni.

Verið öll velkomin.

Um  verkefnið:

Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og núgildandi aðalnámskrá grunnskóla á Íslandi leggja ríka áherslu á jafnréttis- og hinseginfræðslu í skólum. Samt sem áður ber lítið á því að þessum skyldum skólanna sé fullnægt á grunnskólastigi og rannsóknir eru fáar á samspili jafnréttis og skólastarfs. Rannsóknin gefur innsýn í það hvernig kyngervi endurspeglast í skólamenningu og starfsháttum í efstu bekkjum í einum grunnskóla.

Etnógrafískum aðferðum var beitt við gagnasöfnun á vettvangi skólans. Þátttökuathugun fór fram í rúmlega þrjá mánuði sem gaf færi á nánu samspili rannsakanda og vettvangs, og skilaði dýpri þekkingu en áður á því hvernig kyngervi er skilgreint og tjáð á grunnskólastigi á Íslandi. Áttatíu og fjórir nemendur, tveir skólastjórnendur og 7 kennarar tóku þátt í hóp- og einstaklingsviðtölum auk þess sem óformleg samtöl við nemendur, kennara og annað starfsfólk fóru fram. Innihaldsmikil vettvangslýsing var skrifuð með ríkulegum gögnum auk annarra gagna sem safnað var til að öðlast innsýn í kynbundnar venjur og orðræðu í skólaumhverfinu.

Helstu niðurstöður benda til þess að skólaumhverfið stuðli að aðgreiningu milli drengja og stúlkna á bæði augljósan og óljósan hátt. Skortur var á viðspyrnu við hina viðvarandi kynjaskiptingu. Þetta endurspeglaðist í sameiginlegum skilningi á kyni og kynbundinni uppröðun og skipulagi í mismunandi skólarýmum sem endurskapa kynjatengsl i anda tvíhyggju. Nemendur sem kröfðust rýmis til að andmæla kynjahandritinu stóðu einir en í viðleitni þeirra fólst viss áhætta sem gat orsakað höfnun eða jaðarsetningu þeirra. Niðurstöður benda ennfremur til þess að skólar verði að bjóða upp á jafnréttisfræðslu í stað þess að takmarka val um kyntjáningu og þar með frelsi nemenda til að tjá alls kyns kyn- og kynhneigðir.

Um doktorsefnið

Bergljót Þrastardóttir fæddist á Akureyri 1. júlí árið 1969. Hún lauk námi í kennslufræðum til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri árið 2003 og BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2004.  Árið 2012 lauk hún meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Bergljót starfaði sem grunnskólakennari við Lundarskóla á Akureyri um árabil og sem sérfræðingur á Jafnréttisstofu frá 2008 til 2020. Meðfram störfum sínum á Jafnréttisstofu og doktorsnáminu sinnti hún stundakennslu við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Frá árinu 2020 hefur hún starfað sem lektor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Foreldrar Bergljótar eru Þröstur Guðjónsson og Gunnhildur Baldvinsdóttir. Eiginmaður Bergljótar er Jón Ívar Rafnsson og börn þeirra eru Arnaldur Skorri og Hildur Lilja.

Bergljót Þrastardóttir ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands: Making Sense of Gender in Compulsory School Practices in Iceland Kyngervi í grunnskólastarfi á Íslandi Vörnin fer fram miðvikudaginn 18. október kl. 09:30 í Hátíðarsal Háskóla Íslands og verður einnig streymt. Hlekkur á streymi hér 

Doktorsvörn í menntavísindum: Bergljót Þrastardóttir