Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Romina Werth

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Romina Werth - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. apríl 2023 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 21. apríl 202 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Romina Werth doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum, A Different Story. The Fairy Tale in Old Norse Literature. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. (Smellið hér til að fylgjast með vörninni í streymi).

Andmælendur við vörnina verða dr. Carolyne Larrington, prófessor við Oxford háskóla, og dr. Jan M. Ziolkowski, prófessor við Harvard háskóla.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Aðalheiðar Guðmundsdóttur, prófessors við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Francisco Vaz da Silva, dósent við Háskólastofnunina í Lissabon (ISCTE), og dr. Valdimar Tryggvi Hafstein, prófessor við Háskóla Íslands.

Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Í doktorsritgerð sinni leitast Romina við að rannsaka og leggja fram ný rök í umræðunni um tengsl ævintýra og íslenskra miðaldabókmennta, ekki síst í ljósi sívaxandi áhuga á tengslum þjóðfræðaefnis og norrænna miðaldabókmennta hin síðari ár. Einnig gerir hún grein fyrir mismunandi viðhorfum fræðimanna til þeirra eininga innan ævintýra síðari alda sem eiga sér hliðstæður í miðaldaheimildum. Markmiðið er að greina þetta ævintýraefni og sýna með hvaða hætti það birtist okkur í hinum eldri textum, og hvort um er að ræða heilar ævintýragerðir eða smærri frásagnareiningar á borð við minni (e. motifs). Spurt er að hvaða marki þetta efni sé sambærilegt yngri tilbrigðum úr þeim ævintýrum sem skráð voru eftir munnlegri geymd á 18. og 19. öld og hvernig það greinist að. Að lokum leitast hún við að varpa ljósi á merkingu ævintýraefnis í íslenskum miðaldabókmenntum, sem og tilgang þeirra sagnaritara sem nýttu sér efni úr ranni ævintýranna í bókmenntaverk sín.

Um doktorsefnið

Romina Werth lauk BA-prófi í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands og MA-prófi í þjóðfræði frá sama skóla. Hún hefur kennt námskeið um íslenskar þjóðsögur og þjóðtrú á háskólastigi og starfar nú sem umsjónarmaður doktorsnáms á Hugvísindasviði Háskóla Íslands.

 

Romina Werth

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Romina Werth