Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Haukur Ingvarsson

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Haukur Ingvarsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. ágúst 2020 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmtudaginn 27. ágúst 2020 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Haukur Ingvarsson doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum sem nefnist „Orðspor Williams Faulkners á Íslandi 1930–1960“. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. Hér verður hægt að fylgjast með vörninni í streymi.

Andmælendur við vörnina verða dr. Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur og fræðimaður hjá Rannsóknarsetri HÍ á Hornafirði, og dr. Rósa Magnúsdóttir, dósent í sagnfræði við Institut for Kultur og Samfund við Háskólann í Árósum í Danmörku. 

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Jóns Karls Helgasonar, prófessors í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Í doktorsnefnd sátu dr. Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði og dr. Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við sama skóla. 

Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni. 

Um rannsóknina 

Í ritgerðinni er leitað svara við því hvernig nafn bandaríska höfundarins, Williams Faulkners (1897–1962), varð til og þróaðist á íslenskum menningarvettvangi frá því að það bar fyrst á góma í íslenskum prentmiðli 8. maí 1933 og þar til sjöunda og síðasta þýðing Kristjáns Karlssonar á smásögu eftir Faulkner birtist á prenti árið 1960. Víðtækara markmið ritgerðarinnar er að kanna samspil íslenska bókmenntakerfisins við erlend bókmenntakerfi á umbrotatímum í Íslandssögunni þegar staða landsins gagnvart umheiminum tók miklum breytingum. Á því tímabili sem hér er til skoðunar breytist Ísland úr hjálendu Dana í sjálfstætt ríki, úr herlausu landi í hersetið og úr hlutlausu landi í hernaðarlega mikilvægt svæði á tímum seinni heimstyrjaldarinnar og síðar kalda stríðsins. 

Um doktorsefnið 

Haukur Ingvarsson lauk B.A.- og meistaraprófi í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hann er rithöfundur og fæst jöfnum höndum við skáldskap og fræðileg skrif. Hann er stundarkennari við Háskóla Íslands og annar ritstjóra Skírnis – Tímarits Hins íslenska bókmenntafélags. 

Haukur Ingvarsson.

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum: Haukur Ingvarsson