Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Stefanie Bade

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Stefanie Bade - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. ágúst 2023 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 15. ágúst 2023 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Stefanie Bade doktorsritgerð sína í íslenskri málfræði, Accents and folk linguistics: A grounded-theoretical analysis of Icelandersʼ reactions to foreignersʼ use of Icelandic. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. (Smellið hér til að fylgjast með vörninni í streymi).

Andmælendur við vörnina verða Jacob Thøgersen, dósent við Kaupmannahafnarháskóla, og Unn Røyneland, prófessor við háskólann í Ósló. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Kristjáns Árnasonar, prófessors emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Sebastian Kürschner, prófessor við kaþólska háskólann Eichstätt-Ingolstadt í Þýskalandi, Tore Kristiansen, prófessor emeritus við Kaupmannahafnarháskóla og Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Jón Karl Helgason, varadeildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Í ljósi þess að sífellt fleiri íbúar hér á landi tala íslensku með erlendum hreim hefur þessi ritgerð það að markmiði að kanna hugmyndir innfæddra Íslendinga um erlendan hreim og skoða þá þætti sem liggja á bak við þær hugmyndir. Þessi rannsókn er framkvæmd með eigindlegum aðferðum og nýtir sér hugtök og aðferðir sem beitt hefur verið í rannsóknum á alþýðumálfræði. Skipulögð voru fimm rýnihópaviðtöl og auk almennrar umræðu um breytileika í íslensku voru sex upptökur spilaðar fyrir þátttakendurna, fimm af einstaklingum með annað mál en íslensku að móðurmáli og ein af íslenskum móðurmálshafa, og þátttakendurnir beðnir um að meta þær. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að skynjun tiltekinna þátta á borð við skynjaðan skiljanleika, viðleitni talandans og hugmyndir um uppruna talandans hafi áhrif á mat á erlendum hreim.

Um doktorsefnið

Stefanie Bade lauk BA-prófi í norrænum fræðum við Humboldt háskóla í Berlín í Þýskalandi og meistaraprófi í þýðingafræði við Háskóla Íslands. Hún starfar sem aðjunkt í Íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.

Stefanie Bade.

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Stefanie Bade