Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Margrét Guðmundsdóttir

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Margrét Guðmundsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. október 2022 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mánudaginn 3. október 2022 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Margrét Guðmundsdóttir doktorsritgerð sína í íslenskri málfræði, Mál á mannsævi. 70 ára þróun tilbrigða í framburði ‒ einstaklingar og samfélag. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.

Andmælendur við vörnina verða dr. Ari Páll Kristinsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og dr. Finnur Friðriksson, dósent við Háskólann á Akureyri. 

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Höskuldar Þráinssonar, prófessors emeritusar við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Helge Sandøy, prófessor emeritus við Háskólann í Bergen, og dr. Kristján Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands.

Jón Karl Helgason, varaforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Í doktorsritgerð sinni rannsakar Margrét tilbrigði í íslenskum framburði, nánar tiltekið eftirtalin fjögur pör þar sem fyrrnefnda afbrigðið er sjaldgæfara á landsvísu og útbreiðsla þess að mestu tengd afmörkuðum landsvæðum: Harðmæli/linmæli, raddaður/óradd­aður framburður, hv-/kv-framburður og skaftfellskur einhljóðaframburður/tvíhljóða­fram­burður. Efniviðurinn samanstendur af þremur framburðarrannsóknum sem unnið var að á 70 ára tímabili: Rannsókn Björns Guðfinnssonar frá 5. áratug 20. aldar, RÍN, Rannsókn á íslensku nútímamáli, frá 9. áratugnum og RAUN, Málbreytingar í raun­tíma í íslensku hljóð­kerfi og setningagerð, sem hófst árið 2010. Enn fremur voru viðhorf til framburðarafbrigða könnuð í tengslum við rannsóknina. Þessi efniviður er nýttur til að kanna þróun landshlutabundnu afbrigðanna fjögurra á kjarnasvæðum sínum og málþróun yfir æviskeiðið, ævibreytingar, en hluti þátttakenda tók þátt í ýmist tveimur eða þremur rannsóknum. Hvort tveggja er skoðað frá sjónarhóli málkunnáttufræði og félagslegra málvísinda. 

Um doktorsefnið

Margrét Guðmundsdóttir lauk BA-prófi í íslensku og meistaraprófi í íslenskri málfræði frá Háskóla Íslands. Hún er verkefnisstjóri Hugvísindastofnunar.

Margrét Guðmundsdóttir

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Margrét Guðmundsdóttir