Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Iris Edda Nowenstein

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Iris Edda Nowenstein - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. apríl 2023 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 28. apríl 2023 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Iris Edda Nowenstein doktorsritgerð sína í íslenskri málfræði, Building yourself a variable case system: The acquisition of Icelandic datives. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. (Smellið hér til að fylgjast með vörninni í streymi).

Andmælendur við vörnina verða dr. Miriam Butt, prófessor við háskólann í Konstanz í Þýskalandi, og dr. Misha Becker, prófessor við háskólann í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Sigríðar Sigurjónsdóttur, prófessors í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Anton Karl Ingason, dósent við Íslensku- og menningardeild HÍ, dr. Joel C. Wallenberg, dósent við Háskólann í York og dr. Charles Yang, prófessor við Háskólann í Pennsylvaníu.

Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina 

Íslenska fallmörkunarkerfið hefur um áratugaskeið reynst mikilvægur prófsteinn á formlegar kenningar um fall, m.a. vegna þess að íslenska hefur þann sjaldgæfa eiginleika að merkja hlutverk rökliða bæði með nokkuð fastri orðaröð og ríkulegri fallbeygingu. Íslenska þágufallið er auk þess óvenju virkt. Í ritgerðinni er sjónum beint að því hvernig börn tileinka sér þessa virkni, og íslenska fallmörkunarkerfið almennt, á máltökuskeiði. Byggt er á tilraunagögnum frá 148 börnum á aldrinum tveggja til þrettán ára auk greininga á barnamálsgagnasöfnum. Sýnt er fram á að eiginleikar íslenskrar fallmörkunar geta svarað grundvallarspurningum um það hvernig börn tileinka sér mál og móta þróun tungumálsins, auk þess sem sjónarhorn máltökunnar er ómissandi hluti af því að skýra eðli falls og tengsl þess við merkingu.

Um doktorsefnið

Iris Edda Nowenstein lauk BA- og MA-prófi í almennum málvísindum frá Háskóla Íslands og MS-prófi í talmeinafræði frá sama skóla. Hún starfar við rannsóknir og kennslu í Háskóla Íslands og er talmeinafræðingur á Landspítala.

Iris Edda Nowenstein.

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Iris Edda Nowenstein