Skip to main content

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Ingunn Hreinberg Indriðadóttir

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Ingunn Hreinberg Indriðadóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
30. maí 2023 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 30. maí 2023 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Ingunn Hreinberg Indriðadóttir doktorsritgerð sína í íslenskri málfræði, Weight effects and variation in word order in Icelandic and Faroese. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. Einnig verður hægt að fylgjast með vörninni í streymi.

Andmælendur við vörnina verða Caroline Heycock, prófessor við Edinborgarháskóla og Heimir Freyr Viðarsson, aðjunkt í íslensku á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Höskuldar Þráinssonar, prófessors emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Anton Karl Ingason, dósent við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Nicole Dehé, prófessor við háskólann í Konstanz í Þýskalandi.

Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Svokölluð þyngdaráhrif hafa lengi verið þekkt fyrirbæri í málvísindum en málfræðingar eru ekki á einu máli um það hvernig best sé að skilgreina þyngd setningarliða. Í ritgerðinni er sjónum beint að ólíkum skilgreiningum á þyngd og þær kannaðar í ýmsum setningagerðum í íslensku og færeysku með blönduðum rannsóknaraðferðum. Sýnt er fram á að þyngdaráhrif séu víðtækari en áður var talið og að ólíkir þyngdarþættir, þ.m.t. fjöldi orða í setningarliðum og flækjustig liðanna, hlutfallsleg þyngd liða og jafnvel hljóðkerfislegir þættir á borð við setningaráherslu, geta allir haft áhrif á orðaröð í ýmsum setningagerðum í íslensku og færeysku. Auk þess er sýnt fram á að þyngdaráhrif almennt séu mikilvægari fyrir málbeitingu en upplýsingaúrvinnslu viðtakanda á rituðu máli, en ekki hefur verið sýnt fram á þetta áður með svo ítarlegri rannsókn.

Um doktorsefnið

Ingunn Hreinberg Indriðadóttir lauk BA-prófi í almennum málvísindum og rússnesku frá Ríkisháskóla Sankti-Pétursborgar og MA-prófi í almennum málvísindum frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem aðjunkt í rússnesku við Háskóla Íslands.

Ingunn Hreinberg Indriðadóttir.

Doktorsvörn í íslenskri málfræði: Ingunn Hreinberg Indriðadóttir