Skip to main content

Doktorsvörn í guðfræði: Bjarni Karlsson

Doktorsvörn í guðfræði: Bjarni Karlsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. apríl 2020 9:00 til 11:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 24. apríl 2020 fer fram doktorsvörn við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Bjarni Karlsson doktorsritgerð sína í guðfræði sem nefnist Vistkerfisvandi og fátækt. Einkenni lífvænlegrar heimsmyndar, mannskilnings og fátæktarhugtaks í fjölmenningarsamfélagi síðnútímans. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 9:00. Hún verður lokuð gestum en hægt verður að fylgjast með henni í beinni útsendingu á þessari slóð  https://livestream.com/hi/bjarnikarlsson.

Andmælendur við vörnina verða dr. Jón Ásgeir Kalmansson, aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og dr. Sigríður Guðmarsdóttir, dósent við VID vitenskaplige høgskole í Noregi.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Sólveigar Önnu Bóasdóttur, prófessors í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur á Hagstofu Íslands, og dr. Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.

Rúnar Már Þorsteinsson, forseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Ritgerðin dregur fram og gagnrýnir ýmsa ágalla nútímalegrar hugsunar um fátækt, heiminn, og stöðu mannsins í honum. Borin er saman hnattræn orðræða veraldlegra og trúarlegra aðila og rök færð fyrir samskilningi um gildi þess að leggja niður eindahyggju og mannmiðlægni en taka upp tengslahyggju og lífmiðlægni í heimsmenningunni.

Með samanburði á völdum stefnuskjölum eru færð rök fyrir því að engin neikvæð spenna ríki í hnattrænni orðræðu milli veraldlegrar og kristinnar umfjöllunar um vistkerfisvanda og fátækt. Orðræða SÞ hefur snúist frá mannmiðlægni til lífmiðlægni á umliðnum fimmtíu árum. Höfundur heldur því fram að guðmiðlæg nálgun kristninnar geti falið í sér þá lífmiðlægu og hlúð að henni í menningunni, m.a. með því að líta á vistkerfið sem líkama Guðs.

Spurt er: Hver eru meginatriði í siðfræði þar sem fátækt er forðað og almannahagur er leiðarljós?

Tillögur að svari eru lagðar fram um leið og gildi hins lýðræðislega samtals er undirstrikað. Í stað einhliða áherslu á lög og reglur í meintu hlutlausu almannarými nútímasamfélagsins er mælt með lýðræðislegri og margþættri samræðu þar sem ólíkar hefðir og menningarheimar mætist og haldi hvert öðru ábyrgu í gagnkvæmri hlustun og virðingu.

Um doktorsefnið

Bjarni Karlsson lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1990 og meistaragráðu í guðfræðilegri siðfræði 2007 frá sama skóla. Hann starfaði sem sóknarprestur í Vestmannaeyjum og Laugarneskirkju í Reykjavík árin 1991- 2014 en rekur nú eigin sálgæslustofu í Reykjavík.

Bjarni Karlsson.

Doktorsvörn í guðfræði: Bjarni Karlsson