Skip to main content

Doktorsvörn í fornleifafræði: Jakob Orri Jónsson

Doktorsvörn í fornleifafræði: Jakob Orri Jónsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. mars 2022 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðvikudaginn 23. mars 2022 fer fram doktorsvörn við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þá ver Jakob Orri Jónsson doktorsritgerð sína í fornleifafræði, Pots, Pipes and Plates. An Archaeology of Consumption during the Danish Trade Monopoly. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. (Smellið hér til að fylgjast með vörninni í streymi).

Andmælendur við vörnina verða dr. Douglas J Bolender rannsóknalektor við Háskólann í Massachusetts, Boston, og dr. Jette Linaa, sýningarstjóri á Moesgaard Museum og dósent við Háskólann í Árósum.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Gavins Lucas, prófessors við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Audrey Horning, prófessor við Queens University, Belfast, dr. Guðmundur Jónsson, prófessor við Háskóla Íslands, og Timo Ylimaunu, dósent við Háskólann í Oulu.

Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Í Evrópu og Norður-Ameríku er litið á árnýöld, sérstaklega 17. og 18. öld, sem upphaf neyslubyltingar og neytendasamfélags. Á Íslandi er þetta tímabil hins vegar oft séð sem tími efnahagslegrar stöðnunar og almennrar fátæktar. Í rannsókn sinni kannar Jakob Orri Jónsson togstreituna milli hinnar íslensku hugmyndar um „niðurlægingartímabilið“ og hinnar hnattrænu hugmyndar um efnahagslegan vöxt og neyslubyltingu og hvor sýnin nær betur utan um aðstæður á Íslandi á árnýöld. Tóbakspípur úr leir og leirker eru könnuð, litið er á fjölda þeirra í fornleifafræðilegu samhengi 17. og 18. aldar á Íslandi, hvernig og hvenær þau koma inn í íslenska fundaflóru og hvernig þau dreifast eftir félagslegri og efnahagslegri stöðu og aðgangi að mörkuðum. Neyslumynstrin eru borin saman við neyslumynstur frá Norðvestur Evrópu og þau nýtt til að öðlast skilning á þýðingu og nýtingu lúxusvarnings á Íslandi og hvort hægt sé að skilgreina Ísland þessa tíma sem neyslusamfélag.

Um doktorsnefnið

Jakob Orri Jónsson lauk BA og MA prófi í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Hann býr í Austurríki.

Jakob Orri Jónsson.

Doktorsvörn í fornleifafræði: Jakob Orri Jónsson