Skip to main content

Doktorsvörn í ensku: Ásrún Jóhannsdóttir

Doktorsvörn í ensku: Ásrún Jóhannsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. ágúst 2022 9:30 til 12:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mánudaginn 22. ágúst 2022 fer fram doktorsvörn við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Ásrún Jóhannsdóttir doktorsritgerð sína í ensku, Young learner’s lexical proficiency and motivation to learn English in Iceland. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 9:30. (Smellið hér til að fylgjast með vörninni í streymi).

Andmælendur við vörnina verða dr. Jasone Cenoz, prófessor við Háskólann í Baskalandi, og dr. James Milton, prófessor við Háskólann í Swansea.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Birnu Arnbjörnsdóttur, prófessors emeritu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Hafdís Ingvarsdóttir, prófessor emerita við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, dr. Marianne Nikolov, prófessor emerita við Háskólann í Pécs, og dr. Sif Einarsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Geir Sigurðsson, forseti Mála- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Rannsókn Ásrúnar skoðar viðhorf til ensku og enskunotkun íslenskra barna við upphaf formlegrar enskukennslu í 4. bekk og áhrif þessara þátta á orðaforðaþekkingu þeirra og hvata til að læra ensku. Rannsóknarspurningarnar leitast við að skoða tengsl milli enskuáreitis og enskunotkunar í umhverfi barnanna og stærð orðaforða þeirra, en einnig að skoða áhrif kyns og upphafs enskukennslu á orðaforða þátttakenda. Fyrst var lögð fyrir spurningakönnun um hvata barnanna til námsins og síðan tvö orðaforðapróf sem meta grunnþekkingu og vídd þekkingar við upphaf formlegs náms í ensku í grunnskóla. Niðurstöður benda til að orðaforði nemenda kemur að mestu leyti úr daglegu umhverfi utan skóla og er tengdur áhugasviði þeirra. Niðurstöður sýna einnig að þessi 9 ára börn átta sig á nauðsyn þess að læra ensku til framtíðarnotkunar í skóla og við lestur.

Um doktorsnefnið

Ásrún Jóhannsdóttir lauk BA-prófi í ensku við Háskóla Íslands og MA-prófi í ensku með áherslu á málvísindi og kennslufræði við sama skóla. Ásrún hefur einnig lokið diplóma í kennslufræði til kennsluréttinda. Hún er aðjunkt í ensku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.

Ásrún Jóhannsdóttir.

Doktorsvörn í ensku: Ásrún Jóhannsdóttir