Skip to main content

Doktorsvörn í annarsmálsfræðum: Kolbrún Friðriksdóttir

Doktorsvörn í annarsmálsfræðum: Kolbrún Friðriksdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. desember 2021 13:00 til 15:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 17. desember 2021 fer fram doktorsvörn við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Kolbrún Friðriksdóttir doktorsritgerð sína í annarsmálsfræðum, Significant Determinants of Student Retention and Efficient Engagement Strategies in Online Second Language Learning Courses (Opin tungumálanámskeið á neti. Áhrifaþættir virkni og framvindu). Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00. (Smellið hér til að horfa á vörnina í streymi).

Andmælendur við vörnina verða dr. Ana Gimeno Sanz, prófessor við Tækniháskólann í Valencia á Spáni, og dr. Guðrún Geirsdóttir, dósent við Menntavísindasvið og deildarstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Birnu Arnbjörnsdóttur, prófessors við Mála- og menningardeild. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Kristín Ingólfsdóttir fyrrverandi rektor og prófessor við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Jozef Colpaert, prófessor við Háskólann í Antwerpen í Belgíu.

Geir Sigurðsson, forseti Mála og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Doktorsverkefnið er á sviði annarsmálsfræða og hagnýtra málvísinda og beinist að áhrifaþáttum í námi í opnum netnámskeiðum, eða svokölluðum massive open online courses (MOOCs), en með þeim er veittur opinn aðgangur að menntun á ýmsum fræðasviðum í háskólum víða um heim. Nánar tiltekið beinist rannsóknin að námi og kennslu annars máls í netnámskeiðum, svonefndum language MOOCs (LMOOCs). Hún fellur jafnframt undir svið tölvustudds tungumálanáms og -kennslu, eða computer assisted language learning (CALL). Meginmarkmið rannsóknarinnar var að greina þætti sem gætu haft áhrif á framvindu (e. retention) í opnum netnámskeiðum og varpa ljósi á kennsluaðferðir og námsumgjörð sem gætu verið mikilvægur þáttur í að auka virkni og þátttöku nemenda í námskeiðum. Rannsóknin byggðist á gögnum frá nemendum á sjö netnámskeiðum Icelandic Online (IOL) í íslensku sem öðru eða erlendu máli en námskeiðin voru þróuð á vegum Háskóla Íslands.

Um doktorsefnið

Kolbrún Friðriksdóttir hefur lokið B.Ed.-prófi við Kennaraháskóla Íslands, B.A.-prófi í íslensku við Háskóla Íslands og M.A.-prófi í íslenskri málfræði frá sama skóla. Hún er aðjunkt í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.

Kolbrún Friðriksdóttir

Doktorsvörn í annarsmálsfræðum: Kolbrún Friðriksdóttir