Skip to main content

Kennsla náttúrugreina, M.Ed.

Kennsla náttúrugreina, M.Ed.

Menntavísindasvið

Kennsla náttúrugreina

M.Ed. – 120 einingar

Námið býr nemendur undir kennslu náttúrugreina. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á náttúrugreinar, eða BA/BS-prófi í skyldum greinum.

Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Skipulag náms

X

Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F, MAL102F)

Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.

 Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp. 

X

Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (SFG106F, MAL102F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.

X

Kennslufræði eðlis-, efna- og stjörnufræði (SNU217F)

Á námskeiðinu verður fjallað um nám og kennslu í eðlisfræði, í efnafræði og í stjörnufræði. Gefið yfirlit yfir þá þekkingu og færni sem kennari í þessum greinum þarf að hafa. Áhersla verði lögð á sérstöðu þessara faggreina sem námsgreina og að þátttakendur þrói hugmyndir sínar um nám og kennslu þessara greina þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna þær. Grunnhugmynd í námskeiðinu er að þátttakendur þrói þessar hugmyndir með því að kynna sér hugmyndir um nám og kennslu greinanna þriggja og kynna sér rannsóknir á þessum sviðum.

X

Kennslufræði náttúruvísinda-2 (SNU506M)

Fjallað verður um rannsóknir á náttúruvísindamenntun meðal annars á viðhorfum og áhuga nemenda. Fjallað verður um tungumál og læsi í náttúruvísindamenntun og rannsóknir tengdar þeim viðfangsefnum. Kynntar verða leiðir til að efla læsi á náttúruvísindatexta og sjónum beint að hugtakanámi, kennslunálgunum og námaðferðum tengdum lestri, ritun og þátttöku í umræðum. Læsi í víðum skilningi er einn af grunnþáttum menntunar sem fléttast inn í skólastarf þar á meðal náttúruvísindamenntun. Fjallað verður um merkingu hugtaksins læsi í þessu samhengi og sérstöðu náttúruvísindamenntunar hvað varðar læsi. Kynntar verða fjölmargar kennsluaðferðir til að efla læsi á náttúruvísindalega texta. Nemendur lesa greinar um rannsóknir og þróun í náttúruvísindamenntun, gera útdrætti úr þeim og fjalla um þær á Netinu og í staðlotum. Áhersla verður lögð á að nemendur afli sér upplýsinga sjálfir úr ýmsum heimildum kynni hugmyndir sínar og verkefni og taki virkan þátt í umræðum. Einnig munu nemendur kynna sér tímarit á sviðinu og ráðstefnur um náttúruvísindamenntun, meðal annars með því að skoða heimasíður slíkra ráðstefna til að greina mikilvægar nálganir í rannsóknum á þessu sviði.

X

Að kenna um bylgjur, ljós, hljóð og umhverfi (SNU003M)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna bylgjur, ljós og hljóð bæði með því að styrkja þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Mikil áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir grunnskólabarna. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Sveiflur, bylgjur á streng, öldur á vatni, almennir bylgjueiginleikar, hljóð, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, ljós, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, og sjóntæki.

X

Loftslagsbreytingar og menntun (SNU203F)

Fjallað verður um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga eins og þær birtast í náttúrunni heima og á heimsvísu. Tekin verða dæmi af mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins .

Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni.

Þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.

X

Kennslufræði líf- og umhverfisvísinda (SNU214F)

Á námskeiðinu er fjallað um kennslufræði líf- og umhverfisvísinda með áherslu á hlutverk þeirra í almennri menntun, vísindalæsi og eðli vísindalegrar þekkingar. Nemendur kynnast vísindalegum kennsluaðferðum, svo sem lausnarleitarnámi (inquiry-based learning), 5E-nálguninni og staðbundnu námi (place-based education), og vinna með hugtakaskilning, mishugmyndir, læsi, siðferðileg álitamál og sjálfbærni í kennslu líf- og umhverfisvísinda.

Námskeiðið leggur áherslu á ígrundaða kennsluþróun, þar sem nemendur hanna, prófa og ígrunda kennslulotur í líf- og umhverfisvísindum.

Áhersla er lögð á:

  • Vísindalegar kennsluaðferðir eins og lausnaleitarnám (inquiry-based learning), 5E nálgunina og staðbundið nám (place-based learning) sem nýtir staðbundin náttúruleg og manngerð svæði.
  • Hugtakaskilning, mishugmyndir og læsi í líf- og umhverfisvísindum og hvernig rannsóknir á þeim geta stutt kennslu.
  • Gildi verklegrar kennslu og útináms, náttúrutengingu og sjálfbærni í kennslu.
  • Læsi í lífvísindum, eðli vísindalegrar þekkingar og siðferðileg álitamál í kennslu líf- og umhverfisvísinda.
  • Kennslutæki og upplýsingatækni í kennslu líf- og umhverfisvísinda, þar á meðal smásjár, víðsjár og stafrænar lausnir.

Nemendur fá tækifæri til að:

  • Útbúa kennslufræðilega ferilmöppu
  • Rýna í námsefni og kennslugögn og meta þau út frá námskrárbundnum hæfniviðmiðum.
  • Þróa og prófa kennsluaðferðir í örkennslu með jafningjum og á vettvangi (í grunn- eða framhaldsskóla)
  • Nýta kennslufræðilegan matsramman við sjálfsmat og jafningjamat.
  • Miðla eigin kennslureynslu og lærdómi í umræðum, ígrundunarskrifum og kynningum.

X

Erfðir og þróun (SNU102M)

Fjöllum um hlutverk erfðaefnis í lífverum og hvernig eiginleikar lífvera erfast milli kynslóða. Lærum um  litninga og byggingu litninga, frumuskiptingar, lögmál Mendels, umritun og prótínmyndun, erfðamynstur, arfgerðir og svipgerðir ofl. Kynnumst því helsta sem er að gerast í erfðatækni og ræðum gagnsemi þess og galla.

Þróunaröfl (náttúrulegt val, stökkbreytingar, genaflökt, genaflæði o.fl.), stórir viðburðir í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, þróunarsaga mannsins. Fjölbreytni lífsins. Þróunarsaga mannsins. 

Grunnskólakennsla í þróunarlíffræði og erfðafræði.  Námskrá, námsefni, möguleikar netsins og hreyfiefnis í kennslu.
Vinnulag: Fyrirlestrar kennara og nemenda - nær og fjær. Umræðutímar á staðnum/netinu. 

X

Að kenna um hreyfingu og krafta (SNU101M)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um hreyfingu og krafta og önnur hugtök sem tengjast hreyfingu. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Einföld áhöld og vélar, hraði, hröðun, kraftur, tregða, massi, lögmál um hreyfingu hluta, mismunandi kraftar svo sem þyngdarkraftar, togkraftar, núningskraftar, samlagning krafta, vinna, orka, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, fjaðurstöðuorka, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar.

X

Stjörnufræði og þróun lífs (SNU218F)

Viðfangsefni námskeiðsins eru stjörnufræði og þróun lífs. Fjallað verður um sögu alheimsins og myndun sólkerfisins og jarðarinnar, ekki síst með áherslu á það hvernig efnafræðilegar og eðlisfræðilegar aðstæður mynduðust fyrir kviknun lífs og viðhaldi þess. Kynntar verða hugmyndir um möguleika til uppruna lífs og eiginleika erfðaefnisins. Fjallað verður um sögu lífs á jörðinni með áherslu á þróunaröfl og stóra viðburði í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, sem og þróunarsögu mannsins. . Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið stjörnufræði, líf-stjörnufræði og um uppruna lífs.

X

Að kenna um orku í náttúru og samfélagi (SNU204M)

Fjallað verður um orku í náttúru og samfélagi í víðu samhengi. Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um orku og orkutengd viðfangsefni. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi þar með talið hvernig orkuflæði er háttað í náttúru og mannlegu samfélagi.

Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu úr daglegu lífi og auk þannig skilning á því hvernig orka skiptir máli fyrir hvern einstakling. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir.

Viðfangsefni námskeiðsins eru: Einfaldar  vélar, vinna, orka, einingar fyrir orku, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, varmaorka, fjaðurstöðuorka, einfaldir orkuútreikningar, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar, nýtanleg orka, orka í náttúrunni, orka í samfélaginu, orkuvinnsla og orkunýting.

X

Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)

Markmiðið er að nemendur

  • hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
  • þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
  • geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
  • séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
  • hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun

Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.

Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.

Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.

X

Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)

Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.

Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.

X

Lokaverkefni (SNU401L)

Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.

Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.

Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.

Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.

Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.

Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, UgluFræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni

X

Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, teymiskennslu og teymisvinnu og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.

Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Kennaranemar vinna að jafnaði saman í teymi á vettvangi í samstarfi við æfingakennara og kennara námskeiðsins. Þeir fara með ákveðin verkefni til að skoða og vinna með, auk þess sem þeir skipuleggja samþætt, lýðræðislegt verkefni um málfefni líðandi stundar. Einnig safna þeir gögnum af vettvangi sem nýtt eru í tengslum við vinnu að námsþáttum námskeiðsins. Áhersla er lögð á að skrifin tengist kenningum um nám og kennslu, faggrein, siðfræði og starfskenningu kennaranema. Vettvangsnámshlutinn er einnig hluti af námsvinnunni í bóknámshluta námskeiðsins, þ.e. einstakir námsþættir og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.

Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa að landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.

Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:

Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið  í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.

Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.

Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.

Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.

X

Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi. 

Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.

X

Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)

Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.

Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.

Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.

X

Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)

Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.

X

Læsi í faggreinum (ÍET214F)

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar

 Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.

X

Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)

Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.

Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá
X

Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)

Námsmat og námskrá grunnskóla (KME006F)

Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms. 

Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.

Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.

X

Kennslufræði náttúruvísinda-1 (SNU215F)

Á námskeiðinu er fjallað um rannsóknir á grunnþáttum kennslufræði náttúruvísinda í grunnskóla með áherslu á verklega kennslu, athuganir og tilraunir, notkun upplýsingatækni og fjölbreyttar leiðir til að efla skilning og áhuga nemenda. Nemendur kynnast hugmyndum um hversdagshugmyndir, mishugmyndir og hugtakanám í náttúruvísindum á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Skoðaðar eru leiðir til að skipuleggja kennsla í ljós námsáskorana sem hversdagsleg reynsla nemenda og málheimur valda og röksemdum fyrir þessum leiðum.

Fjallað er um notkun sýndartilrauna, skapandi miðlunar og stafrænnar tækni í kennslu, sem og um ávinning og áskoranir tengdar útikennslu og útinámi. Áhersla er lögð á virka þátttöku, verklega vinnu og ígrundun sem grunn að áframhaldandi námi í náttúruvísindakennslu. Nemendur skipuleggja og framkvæma rannsókn á sviði menntunar í náttúruvísindum.

X

Nám og kennsla í grunnskóla (KME102F)

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi. 

Inntak / viðfangsefni:

Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms. 

Í vettvangsnámi kynna kennaranemar sér starfshætti á ákveðnu námssviði eða faggrein sem þeir hyggjast sérhæfa sig í. Í vettvangsnámi er nema ætlað að sýna frumkvæði og virkni og taka þátt í öllu daglegu starfi eftir því sem við verður komið. Skilgreind kennsla fer eftir fjölda Ve.

X

Samspil lífvera og umhverfis (SNU105F)

Á námskeiðinu er fjallað um vistfræði sem fræðilegt og kennslufræðilegt viðfangsefni með áherslu á samspil lífvera og umhverfis. Nemendur dýpka skilning sinn á grunnhugtökum vistfræðinnar, svo sem vistkerfum, flæði orku, hringrásum efna, stofnbreytingum, vistfræðilegum tengslum og líffræðilegum fjölbreytileika, og greina mikilvægi þeirra í samhengi sjálfbærrar þróunar.

Námskeiðið beinir sjónum að vistfræðilegum áskorunum samtímans, þar á meðal áhrifum mannlegra athafna og loftslagsbreytinga á náttúru og vistkerfi, með áherslu á íslenskt samhengi. Fjallað er gagnrýnið um hlutverk vistfræði í umhverfismennt og hvernig efla megi getu nemenda til skilnings, þátttöku og aðgerða í átt að sjálfbærni.

Sérstök áhersla er lögð á kennslufræðilegar nálganir í vistfræðikennslu á unglingastigi grunnskóla, þar á meðal rannsóknarmiðað nám, skapandi nám og útinám. Nemendur vinna með fræðilegar og hagnýtar leiðir til að skipuleggja kennslu og útikennslu sem styður skilning nemenda á vistfræðilegum ferlum, tengslum lífvera og áhrifum mannsins á náttúru.

X

Að kenna um hreyfingu og krafta (SNU101M)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um hreyfingu og krafta og önnur hugtök sem tengjast hreyfingu. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Einföld áhöld og vélar, hraði, hröðun, kraftur, tregða, massi, lögmál um hreyfingu hluta, mismunandi kraftar svo sem þyngdarkraftar, togkraftar, núningskraftar, samlagning krafta, vinna, orka, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, fjaðurstöðuorka, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar.

X

Að kenna efna- og varmafræði (SNU104F)

Fjallað verður um hugtök og kenningar á sviði efnafræði og varmafræði sem kennd eru í grunnskólum og leiðir til að kenna þessa þætti til skilnings með mikla áherslu á verklegar tilraunir og athuganir. Þá verður nemendum kynnt tækifæri sem notkun upplýsingatækni veitir til að efla áhuga og forvitni um náttúruna. Á námskeiðinu verður fjallað um uppbyggingu efna, efnabreytingar, frumeindakenninguna og lotukerfið, varmaorku og hitastig, varmaflutninga, nýting varmaorku og orkuferli sem tengjast efnabreytingum. Nemendur kynna sér rannsóknir á efnafræði- og varmafræðinámi.

X

Kennslufræði eðlis-, efna- og stjörnufræði (SNU217F)

Á námskeiðinu verður fjallað um nám og kennslu í eðlisfræði, í efnafræði og í stjörnufræði. Gefið yfirlit yfir þá þekkingu og færni sem kennari í þessum greinum þarf að hafa. Áhersla verði lögð á sérstöðu þessara faggreina sem námsgreina og að þátttakendur þrói hugmyndir sínar um nám og kennslu þessara greina þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna þær. Grunnhugmynd í námskeiðinu er að þátttakendur þrói þessar hugmyndir með því að kynna sér hugmyndir um nám og kennslu greinanna þriggja og kynna sér rannsóknir á þessum sviðum.

X

Að kenna um rafmagn og segulmagn (SNU216F)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um rafmagn og segulmagn. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Rafmagn, rafhleðslur, rafkrafta, stöðurafmagn, rafstrauma, segulmagn, segulkraftar, víxlverkun rafmagns og segulmagns, og framleiðsla og nýting rafmagns. Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið rafsegulfræði.

X

Kennslufræði náttúruvísinda-2 (SNU506M)

Fjallað verður um rannsóknir á náttúruvísindamenntun meðal annars á viðhorfum og áhuga nemenda. Fjallað verður um tungumál og læsi í náttúruvísindamenntun og rannsóknir tengdar þeim viðfangsefnum. Kynntar verða leiðir til að efla læsi á náttúruvísindatexta og sjónum beint að hugtakanámi, kennslunálgunum og námaðferðum tengdum lestri, ritun og þátttöku í umræðum. Læsi í víðum skilningi er einn af grunnþáttum menntunar sem fléttast inn í skólastarf þar á meðal náttúruvísindamenntun. Fjallað verður um merkingu hugtaksins læsi í þessu samhengi og sérstöðu náttúruvísindamenntunar hvað varðar læsi. Kynntar verða fjölmargar kennsluaðferðir til að efla læsi á náttúruvísindalega texta. Nemendur lesa greinar um rannsóknir og þróun í náttúruvísindamenntun, gera útdrætti úr þeim og fjalla um þær á Netinu og í staðlotum. Áhersla verður lögð á að nemendur afli sér upplýsinga sjálfir úr ýmsum heimildum kynni hugmyndir sínar og verkefni og taki virkan þátt í umræðum. Einnig munu nemendur kynna sér tímarit á sviðinu og ráðstefnur um náttúruvísindamenntun, meðal annars með því að skoða heimasíður slíkra ráðstefna til að greina mikilvægar nálganir í rannsóknum á þessu sviði.

X

Að kenna um bylgjur, ljós, hljóð og umhverfi (SNU003M)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna bylgjur, ljós og hljóð bæði með því að styrkja þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Mikil áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir grunnskólabarna. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Sveiflur, bylgjur á streng, öldur á vatni, almennir bylgjueiginleikar, hljóð, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, ljós, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, og sjóntæki.

X

Kennslufræði líf- og umhverfisvísinda (SNU214F)

Á námskeiðinu er fjallað um kennslufræði líf- og umhverfisvísinda með áherslu á hlutverk þeirra í almennri menntun, vísindalæsi og eðli vísindalegrar þekkingar. Nemendur kynnast vísindalegum kennsluaðferðum, svo sem lausnarleitarnámi (inquiry-based learning), 5E-nálguninni og staðbundnu námi (place-based education), og vinna með hugtakaskilning, mishugmyndir, læsi, siðferðileg álitamál og sjálfbærni í kennslu líf- og umhverfisvísinda.

Námskeiðið leggur áherslu á ígrundaða kennsluþróun, þar sem nemendur hanna, prófa og ígrunda kennslulotur í líf- og umhverfisvísindum.

Áhersla er lögð á:

  • Vísindalegar kennsluaðferðir eins og lausnaleitarnám (inquiry-based learning), 5E nálgunina og staðbundið nám (place-based learning) sem nýtir staðbundin náttúruleg og manngerð svæði.
  • Hugtakaskilning, mishugmyndir og læsi í líf- og umhverfisvísindum og hvernig rannsóknir á þeim geta stutt kennslu.
  • Gildi verklegrar kennslu og útináms, náttúrutengingu og sjálfbærni í kennslu.
  • Læsi í lífvísindum, eðli vísindalegrar þekkingar og siðferðileg álitamál í kennslu líf- og umhverfisvísinda.
  • Kennslutæki og upplýsingatækni í kennslu líf- og umhverfisvísinda, þar á meðal smásjár, víðsjár og stafrænar lausnir.

Nemendur fá tækifæri til að:

  • Útbúa kennslufræðilega ferilmöppu
  • Rýna í námsefni og kennslugögn og meta þau út frá námskrárbundnum hæfniviðmiðum.
  • Þróa og prófa kennsluaðferðir í örkennslu með jafningjum og á vettvangi (í grunn- eða framhaldsskóla)
  • Nýta kennslufræðilegan matsramman við sjálfsmat og jafningjamat.
  • Miðla eigin kennslureynslu og lærdómi í umræðum, ígrundunarskrifum og kynningum.

X

Loftslagsbreytingar og menntun (SNU203F)

Fjallað verður um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga eins og þær birtast í náttúrunni heima og á heimsvísu. Tekin verða dæmi af mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins .

Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni.

Þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.

X

Að kenna um orku í náttúru og samfélagi (SNU204M)

Fjallað verður um orku í náttúru og samfélagi í víðu samhengi. Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um orku og orkutengd viðfangsefni. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi þar með talið hvernig orkuflæði er háttað í náttúru og mannlegu samfélagi.

Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu úr daglegu lífi og auk þannig skilning á því hvernig orka skiptir máli fyrir hvern einstakling. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir.

Viðfangsefni námskeiðsins eru: Einfaldar  vélar, vinna, orka, einingar fyrir orku, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, varmaorka, fjaðurstöðuorka, einfaldir orkuútreikningar, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar, nýtanleg orka, orka í náttúrunni, orka í samfélaginu, orkuvinnsla og orkunýting.

X

Erfðir og þróun (SNU102M)

Fjöllum um hlutverk erfðaefnis í lífverum og hvernig eiginleikar lífvera erfast milli kynslóða. Lærum um  litninga og byggingu litninga, frumuskiptingar, lögmál Mendels, umritun og prótínmyndun, erfðamynstur, arfgerðir og svipgerðir ofl. Kynnumst því helsta sem er að gerast í erfðatækni og ræðum gagnsemi þess og galla.

Þróunaröfl (náttúrulegt val, stökkbreytingar, genaflökt, genaflæði o.fl.), stórir viðburðir í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, þróunarsaga mannsins. Fjölbreytni lífsins. Þróunarsaga mannsins. 

Grunnskólakennsla í þróunarlíffræði og erfðafræði.  Námskrá, námsefni, möguleikar netsins og hreyfiefnis í kennslu.
Vinnulag: Fyrirlestrar kennara og nemenda - nær og fjær. Umræðutímar á staðnum/netinu. 

X

Nám og náttúruvísindi á 21. öld (SNU219F)

Rædd verða valin viðfangsefni varðandi náttúruvísindamenntun og þróun hennar á 21. öld. Fjallað verður um gildi náttúruvísindamenntunar og mismunandi markmið náttúruvísindanáms. Fjallað verður um eðli náttúruvísindalegrar þekkingar, aðferðir náttúruvísinda og leiðir til að efla skilning grunnskólanema á eðli náttúruvísinda. Rýnt verður í stöðu náttúruvísindamenntunar á Íslandi og skoðaðir styrkleikar og veikleika þeirrar menntunar samkvæmt niðurstöðum íslenskra rannsókna og alþjóðlegra mælikvarða. Í því ljósi verður rætt um hvaða áskorunum við stöndum helst frammi fyrir og hvaða leiðir gætu reynst vænlegar til úrbóta. Skoðaðar verða bæði nýjungar í skólastarfi og þekktar leiðir sem reynsla er komin á. Einnig verður skoðuð nýsköpun í náttúruvísindum á Íslandi og hagnýting náttúruvísindanna. Nemendur skipuleggja og framkvæma rannsókn á sviði menntunar í náttúruvísindum.

Fjallað verður um: 

  • Eðli vísindalegrar þekkingar og vísindaleg heimspeki 
  • Stefnumótun og námskrárgerð í tengslum við 21. aldar hæfni  
  • Hvernig náttúruvísindi nýtast í nýsköpun?  
  • Hvers vegna náttúruvísindanám er mikilvægt og hvaða starfsmöguleikar tengjast náttúruvísindum? Hagnýting náttúruvísinda.  
  • Námskrár náttúruvísindamenntunar
X

Stjörnufræði og þróun lífs (SNU218F)

Viðfangsefni námskeiðsins eru stjörnufræði og þróun lífs. Fjallað verður um sögu alheimsins og myndun sólkerfisins og jarðarinnar, ekki síst með áherslu á það hvernig efnafræðilegar og eðlisfræðilegar aðstæður mynduðust fyrir kviknun lífs og viðhaldi þess. Kynntar verða hugmyndir um möguleika til uppruna lífs og eiginleika erfðaefnisins. Fjallað verður um sögu lífs á jörðinni með áherslu á þróunaröfl og stóra viðburði í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, sem og þróunarsögu mannsins. . Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið stjörnufræði, líf-stjörnufræði og um uppruna lífs.

X

Hin lifandi náttúra í nærumhverfinu (SNU009F)

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hina lifandi íslensku náttúru í nærumhverfi skóla með sérstakri áherslu á fræðilega greiningu og ígrundun á kennslufræðilegum og vistfræðilegum forsendum útináms. Þá verður lögð áhersla á hlutverk rannsóknarnáms (e. inquiry-based education) og staðbundins náms (e. place-based education). Námskeiðið beinir sjónum að því hvernig hægt er að nýta nærumhverfi skóla á markvissan og fræðilega rökstuddan hátt í náttúrufræðikennslu.

Viðfangsefni námskeiðsins nær sérstaklega til plantna, fugla, smádýra, ferskvatns- og fjörulífvera, með áherslu á búsvæði þeirra og aðlögum.

Nemendur vinna með fjölbreyttar aðferðir til að rannsaka hina lifandi náttúru, svo sem greiningu á plöntum, smádýrum og öðrum lífveruhópum, og tengja athuganir við hugmyndir um búsvæði og  aðlögun. Þá verður rýnt í hlutverk upplýsingatækni í náttúrufræðikennslu og möguleika hennar til að styðja við rannsóknarnám, þátttöku og áhuga nemenda

Námskeiðið leggur áherslu á að nemendur þrói með sér sjálfstæði og faglega ábyrgð í vali og útfærslu kennsluaðferða.

Áhersla er einnig lögð á greiningu á aðalnámskrá grunnskóla og tengingu hennar við forsendur kennslu sem tengist hinni lifandi náttúru í nærumhverfi skólanna.

X

Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)

Markmiðið er að nemendur

  • hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
  • þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
  • geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
  • séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
  • hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun

Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.

Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.

Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.

X

Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)

Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.

Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.

X

Lokaverkefni (SNU401L)

Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.

Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.

Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.

Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.

Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.

Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, UgluFræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni

X

Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, teymiskennslu og teymisvinnu og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.

Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Kennaranemar vinna að jafnaði saman í teymi á vettvangi í samstarfi við æfingakennara og kennara námskeiðsins. Þeir fara með ákveðin verkefni til að skoða og vinna með, auk þess sem þeir skipuleggja samþætt, lýðræðislegt verkefni um málfefni líðandi stundar. Einnig safna þeir gögnum af vettvangi sem nýtt eru í tengslum við vinnu að námsþáttum námskeiðsins. Áhersla er lögð á að skrifin tengist kenningum um nám og kennslu, faggrein, siðfræði og starfskenningu kennaranema. Vettvangsnámshlutinn er einnig hluti af námsvinnunni í bóknámshluta námskeiðsins, þ.e. einstakir námsþættir og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.

Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa að landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.

Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:

Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið  í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.

Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.

Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.

Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.

X

Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi. 

Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá
X

Hin lifandi náttúra í nærumhverfinu (SNU009F)

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hina lifandi íslensku náttúru í nærumhverfi skóla með sérstakri áherslu á fræðilega greiningu og ígrundun á kennslufræðilegum og vistfræðilegum forsendum útináms. Þá verður lögð áhersla á hlutverk rannsóknarnáms (e. inquiry-based education) og staðbundins náms (e. place-based education). Námskeiðið beinir sjónum að því hvernig hægt er að nýta nærumhverfi skóla á markvissan og fræðilega rökstuddan hátt í náttúrufræðikennslu.

Viðfangsefni námskeiðsins nær sérstaklega til plantna, fugla, smádýra, ferskvatns- og fjörulífvera, með áherslu á búsvæði þeirra og aðlögum.

Nemendur vinna með fjölbreyttar aðferðir til að rannsaka hina lifandi náttúru, svo sem greiningu á plöntum, smádýrum og öðrum lífveruhópum, og tengja athuganir við hugmyndir um búsvæði og  aðlögun. Þá verður rýnt í hlutverk upplýsingatækni í náttúrufræðikennslu og möguleika hennar til að styðja við rannsóknarnám, þátttöku og áhuga nemenda

Námskeiðið leggur áherslu á að nemendur þrói með sér sjálfstæði og faglega ábyrgð í vali og útfærslu kennsluaðferða.

Áhersla er einnig lögð á greiningu á aðalnámskrá grunnskóla og tengingu hennar við forsendur kennslu sem tengist hinni lifandi náttúru í nærumhverfi skólanna.

X

Að kenna efna- og varmafræði (SNU104F)

Fjallað verður um hugtök og kenningar á sviði efnafræði og varmafræði sem kennd eru í grunnskólum og leiðir til að kenna þessa þætti til skilnings með mikla áherslu á verklegar tilraunir og athuganir. Þá verður nemendum kynnt tækifæri sem notkun upplýsingatækni veitir til að efla áhuga og forvitni um náttúruna. Á námskeiðinu verður fjallað um uppbyggingu efna, efnabreytingar, frumeindakenninguna og lotukerfið, varmaorku og hitastig, varmaflutninga, nýting varmaorku og orkuferli sem tengjast efnabreytingum. Nemendur kynna sér rannsóknir á efnafræði- og varmafræðinámi.

X

Að kenna um hreyfingu og krafta (SNU101M)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um hreyfingu og krafta og önnur hugtök sem tengjast hreyfingu. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Einföld áhöld og vélar, hraði, hröðun, kraftur, tregða, massi, lögmál um hreyfingu hluta, mismunandi kraftar svo sem þyngdarkraftar, togkraftar, núningskraftar, samlagning krafta, vinna, orka, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, fjaðurstöðuorka, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar.

X

Kennslufræði náttúruvísinda-2 (SNU506M)

Fjallað verður um rannsóknir á náttúruvísindamenntun meðal annars á viðhorfum og áhuga nemenda. Fjallað verður um tungumál og læsi í náttúruvísindamenntun og rannsóknir tengdar þeim viðfangsefnum. Kynntar verða leiðir til að efla læsi á náttúruvísindatexta og sjónum beint að hugtakanámi, kennslunálgunum og námaðferðum tengdum lestri, ritun og þátttöku í umræðum. Læsi í víðum skilningi er einn af grunnþáttum menntunar sem fléttast inn í skólastarf þar á meðal náttúruvísindamenntun. Fjallað verður um merkingu hugtaksins læsi í þessu samhengi og sérstöðu náttúruvísindamenntunar hvað varðar læsi. Kynntar verða fjölmargar kennsluaðferðir til að efla læsi á náttúruvísindalega texta. Nemendur lesa greinar um rannsóknir og þróun í náttúruvísindamenntun, gera útdrætti úr þeim og fjalla um þær á Netinu og í staðlotum. Áhersla verður lögð á að nemendur afli sér upplýsinga sjálfir úr ýmsum heimildum kynni hugmyndir sínar og verkefni og taki virkan þátt í umræðum. Einnig munu nemendur kynna sér tímarit á sviðinu og ráðstefnur um náttúruvísindamenntun, meðal annars með því að skoða heimasíður slíkra ráðstefna til að greina mikilvægar nálganir í rannsóknum á þessu sviði.

X

Samspil lífvera og umhverfis (SNU105F)

Á námskeiðinu er fjallað um vistfræði sem fræðilegt og kennslufræðilegt viðfangsefni með áherslu á samspil lífvera og umhverfis. Nemendur dýpka skilning sinn á grunnhugtökum vistfræðinnar, svo sem vistkerfum, flæði orku, hringrásum efna, stofnbreytingum, vistfræðilegum tengslum og líffræðilegum fjölbreytileika, og greina mikilvægi þeirra í samhengi sjálfbærrar þróunar.

Námskeiðið beinir sjónum að vistfræðilegum áskorunum samtímans, þar á meðal áhrifum mannlegra athafna og loftslagsbreytinga á náttúru og vistkerfi, með áherslu á íslenskt samhengi. Fjallað er gagnrýnið um hlutverk vistfræði í umhverfismennt og hvernig efla megi getu nemenda til skilnings, þátttöku og aðgerða í átt að sjálfbærni.

Sérstök áhersla er lögð á kennslufræðilegar nálganir í vistfræðikennslu á unglingastigi grunnskóla, þar á meðal rannsóknarmiðað nám, skapandi nám og útinám. Nemendur vinna með fræðilegar og hagnýtar leiðir til að skipuleggja kennslu og útikennslu sem styður skilning nemenda á vistfræðilegum ferlum, tengslum lífvera og áhrifum mannsins á náttúru.

X

Erfðir og þróun (SNU102M)

Fjöllum um hlutverk erfðaefnis í lífverum og hvernig eiginleikar lífvera erfast milli kynslóða. Lærum um  litninga og byggingu litninga, frumuskiptingar, lögmál Mendels, umritun og prótínmyndun, erfðamynstur, arfgerðir og svipgerðir ofl. Kynnumst því helsta sem er að gerast í erfðatækni og ræðum gagnsemi þess og galla.

Þróunaröfl (náttúrulegt val, stökkbreytingar, genaflökt, genaflæði o.fl.), stórir viðburðir í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, þróunarsaga mannsins. Fjölbreytni lífsins. Þróunarsaga mannsins. 

Grunnskólakennsla í þróunarlíffræði og erfðafræði.  Námskrá, námsefni, möguleikar netsins og hreyfiefnis í kennslu.
Vinnulag: Fyrirlestrar kennara og nemenda - nær og fjær. Umræðutímar á staðnum/netinu. 

X

Félagsfræði og heimspeki menntunar (SFG106F)

Viðfangsefni: Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í félagsfræðileg og heimspekileg sjónarhorn á menntun og skólastarf. Til að ná því markmiði verður fjallað um valdar félagsfræðilegar og heimspekilegar hugmyndir sem gagnast við að skoða menntun og skólaveruleika. Áhersla er á þrjá þætti. A. Að skilja hugmyndir og hugtök og geta gert grein fyrir þeim. B. Að máta hugmyndir og hugtök við þá menntun og þann skólaveruleika sem við þekkjum. C. Að fjalla með gagnrýnum hætti um hugmyndirnar og þann veruleika sem þær eiga að varpa ljósi á.

 Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða vikulega. Uppteknir fyrirlestrar verða settir á Canvas-vef námskeiðsins. Nemendur kynna sér þá og taka svo þátt í umræðutímum sem ekki verða teknir upp. 

X

Kennsla í margbreytilegum nemendahópi (KME115F)

Markmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum.  Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.

Viðfangsefni
Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.

Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.

Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna). 

X

Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir (MVS009F)

Markmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.   

Inntak / viðfangsefni

  • Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
  • Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
  • Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
  • Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
  • Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
X

Kennslufræði eðlis-, efna- og stjörnufræði (SNU217F)

Á námskeiðinu verður fjallað um nám og kennslu í eðlisfræði, í efnafræði og í stjörnufræði. Gefið yfirlit yfir þá þekkingu og færni sem kennari í þessum greinum þarf að hafa. Áhersla verði lögð á sérstöðu þessara faggreina sem námsgreina og að þátttakendur þrói hugmyndir sínar um nám og kennslu þessara greina þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna þær. Grunnhugmynd í námskeiðinu er að þátttakendur þrói þessar hugmyndir með því að kynna sér hugmyndir um nám og kennslu greinanna þriggja og kynna sér rannsóknir á þessum sviðum.

X

Að kenna um bylgjur, ljós, hljóð og umhverfi (SNU003M)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna bylgjur, ljós og hljóð bæði með því að styrkja þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Mikil áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir grunnskólabarna. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Sveiflur, bylgjur á streng, öldur á vatni, almennir bylgjueiginleikar, hljóð, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, ljós, myndun þess, útbreiðsla og víxlverkun við efni, og sjóntæki.

X

Loftslagsbreytingar og menntun (SNU203F)

Fjallað verður um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga eins og þær birtast í náttúrunni heima og á heimsvísu. Tekin verða dæmi af mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins .

Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni.

Þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.

X

Nám og náttúruvísindi á 21. öld (SNU219F)

Rædd verða valin viðfangsefni varðandi náttúruvísindamenntun og þróun hennar á 21. öld. Fjallað verður um gildi náttúruvísindamenntunar og mismunandi markmið náttúruvísindanáms. Fjallað verður um eðli náttúruvísindalegrar þekkingar, aðferðir náttúruvísinda og leiðir til að efla skilning grunnskólanema á eðli náttúruvísinda. Rýnt verður í stöðu náttúruvísindamenntunar á Íslandi og skoðaðir styrkleikar og veikleika þeirrar menntunar samkvæmt niðurstöðum íslenskra rannsókna og alþjóðlegra mælikvarða. Í því ljósi verður rætt um hvaða áskorunum við stöndum helst frammi fyrir og hvaða leiðir gætu reynst vænlegar til úrbóta. Skoðaðar verða bæði nýjungar í skólastarfi og þekktar leiðir sem reynsla er komin á. Einnig verður skoðuð nýsköpun í náttúruvísindum á Íslandi og hagnýting náttúruvísindanna. Nemendur skipuleggja og framkvæma rannsókn á sviði menntunar í náttúruvísindum.

Fjallað verður um: 

  • Eðli vísindalegrar þekkingar og vísindaleg heimspeki 
  • Stefnumótun og námskrárgerð í tengslum við 21. aldar hæfni  
  • Hvernig náttúruvísindi nýtast í nýsköpun?  
  • Hvers vegna náttúruvísindanám er mikilvægt og hvaða starfsmöguleikar tengjast náttúruvísindum? Hagnýting náttúruvísinda.  
  • Námskrár náttúruvísindamenntunar
X

Kennslufræði líf- og umhverfisvísinda (SNU214F)

Á námskeiðinu er fjallað um kennslufræði líf- og umhverfisvísinda með áherslu á hlutverk þeirra í almennri menntun, vísindalæsi og eðli vísindalegrar þekkingar. Nemendur kynnast vísindalegum kennsluaðferðum, svo sem lausnarleitarnámi (inquiry-based learning), 5E-nálguninni og staðbundnu námi (place-based education), og vinna með hugtakaskilning, mishugmyndir, læsi, siðferðileg álitamál og sjálfbærni í kennslu líf- og umhverfisvísinda.

Námskeiðið leggur áherslu á ígrundaða kennsluþróun, þar sem nemendur hanna, prófa og ígrunda kennslulotur í líf- og umhverfisvísindum.

Áhersla er lögð á:

  • Vísindalegar kennsluaðferðir eins og lausnaleitarnám (inquiry-based learning), 5E nálgunina og staðbundið nám (place-based learning) sem nýtir staðbundin náttúruleg og manngerð svæði.
  • Hugtakaskilning, mishugmyndir og læsi í líf- og umhverfisvísindum og hvernig rannsóknir á þeim geta stutt kennslu.
  • Gildi verklegrar kennslu og útináms, náttúrutengingu og sjálfbærni í kennslu.
  • Læsi í lífvísindum, eðli vísindalegrar þekkingar og siðferðileg álitamál í kennslu líf- og umhverfisvísinda.
  • Kennslutæki og upplýsingatækni í kennslu líf- og umhverfisvísinda, þar á meðal smásjár, víðsjár og stafrænar lausnir.

Nemendur fá tækifæri til að:

  • Útbúa kennslufræðilega ferilmöppu
  • Rýna í námsefni og kennslugögn og meta þau út frá námskrárbundnum hæfniviðmiðum.
  • Þróa og prófa kennsluaðferðir í örkennslu með jafningjum og á vettvangi (í grunn- eða framhaldsskóla)
  • Nýta kennslufræðilegan matsramman við sjálfsmat og jafningjamat.
  • Miðla eigin kennslureynslu og lærdómi í umræðum, ígrundunarskrifum og kynningum.

X

Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun (SNU007F)

Í námskeiðinu er fjallað um:

  • áhrif upplýsingatækni á menntun og skólastarf
  • námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
  • hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
  • innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf
  • kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
  • stafræna hæfni nemenda og kennara og læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni
  • hlutdeild upplýsingatækni í lífi fólks innan og utan skóla

Vinnulag:
Lestur og umræða um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla hugmyndum sínum og reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.

X

Fjarnám og kennsla (SNU008F)

Á námskeiðinu verða hugtökin fjarnám- og fjarkennsla og tengd hugtök s.s. blandað nám, dreifnám og netnám skoðuð og skilgreind. Skoðaðar verða hugmyndir og kenningar sem tengjast sviðinu og hvernig þær hafa þróast frá áherslu á sjálfstætt nám (independent study) á tímum bréfaskóla til áherslu á samskipti og uppbyggingu sameiginlegrar þekkingar á tímum netvæðingar og alþjóðahyggju. Fjallað verður um erlendar og innlendar rannsóknir á fjarnámi og -kennslu. Athygli er beint að stöðu fjarnáms á mismunandi skólastigum, fjarnemum og þörfum þeirra, kennsluháttum með nýtingu mismunandi miðla og hönnun fjarnámsáfanga m.t.t. alþjóðlegra viðmiða og gæðastaðla.

Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.

X

Fjölbreyttir kennsluhættir - nemendamiðað nám (KME205F)

Markmið
Meginmarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur efli þekkingu sína á fjölbreyttum kennsluháttum og hæfni sína í að fjalla um þá með fræðilega viðurkenndum hætti.

Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um kennsluaðferðahugtakið og dæmi kynnt um fræðilega flokkun kennsluaðferða. Rannsóknum á kennsluaðferðum verða gerð sérstök skil, einkum innlendum rannsóknum. Þá verður fjallað um kennsluhætti og kennsluaðferðir sem tengjast hugmyndum um nemendamiðað og lýðræðislegt skólastarf (m.a. opinn skóla, sveigjanlega kennsluhætti, samvinnunám, samkennslu, lausnaleitarnám, heildstæð viðfangsefni, þemanám, samkomulagsnám og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni). Efni námskeiðsins verður tengt þróun fjölbreyttra kennsluhátta hér á landi, og erlendis, og áhersla lögð á að þátttakendur ígrundi eigin reynslu af kennslu. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynna sér einstaka kennsluhætti og kennsluaðferðir til nokkurrar hlítar og fjalla um það með fræðilegum hætti.

Vinnulag
Byggt er á fyrirlestrum, kynningum, málstofum, umræðum, sjálfstæðri vinnu, hópverkefnum, lestri og upplýsingaleit. Lögð er áhersla á að þátttakendur ígrundi eigið starf og greini, túlki og meti reynslu sína og tengi hana við fræði og rannsóknir. Þáttakendur ræða lesefni námskeiðsins og tengja það kennslustundum og eigin reynslu með aðstoð lestrardagbókar og annarra verkefna. Auk þess vinna nemendur lokaverkefni sem er hópverkefni.

X

Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.

X

Að kenna um rafmagn og segulmagn (SNU216F)

Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um rafmagn og segulmagn. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu þátttakenda. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir. Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru: Rafmagn, rafhleðslur, rafkrafta, stöðurafmagn, rafstrauma, segulmagn, segulkraftar, víxlverkun rafmagns og segulmagns, og framleiðsla og nýting rafmagns. Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið rafsegulfræði.

X

Stjörnufræði og þróun lífs (SNU218F)

Viðfangsefni námskeiðsins eru stjörnufræði og þróun lífs. Fjallað verður um sögu alheimsins og myndun sólkerfisins og jarðarinnar, ekki síst með áherslu á það hvernig efnafræðilegar og eðlisfræðilegar aðstæður mynduðust fyrir kviknun lífs og viðhaldi þess. Kynntar verða hugmyndir um möguleika til uppruna lífs og eiginleika erfðaefnisins. Fjallað verður um sögu lífs á jörðinni með áherslu á þróunaröfl og stóra viðburði í sögu lífsins, útrýmingar og ástæður þeirra, sem og þróunarsögu mannsins. . Nemendur kynna sér rannsóknir á námi á svið stjörnufræði, líf-stjörnufræði og um uppruna lífs.

X

Að kenna um orku í náttúru og samfélagi (SNU204M)

Fjallað verður um orku í náttúru og samfélagi í víðu samhengi. Í þessu námskeiði verða þátttakendur búnir undir að kenna um orku og orkutengd viðfangsefni. Þetta er gert með því að styrkja bæði þekkingu nema á viðfangsefnunum og á kennsluhugmyndum sem þeim tengjast. Jafnframt verður skoðað hvernig fyrirbæri tengd þessum hugtökum birtast í manngerðu og náttúrulegu umhverfi þar með talið hvernig orkuflæði er háttað í náttúru og mannlegu samfélagi.

Áhersla verður lögð á að tengja viðfangsefnin við hugmyndir og reynslu úr daglegu lífi og auk þannig skilning á því hvernig orka skiptir máli fyrir hvern einstakling. Fjallað verður um rannsóknir á hugmyndum barna og unglinga um viðfangsefnin og mögulegar leiðir til að tengja með kennslu þessi viðfangsefni við reynsluheim og hugmyndir barna og unglinga. Fjallað verður um kennslu náttúrufræðilegra viðfangsefna námskeiðsins, skoðaðar kennslubækur og verklegar athuganir.

Viðfangsefni námskeiðsins eru: Einfaldar  vélar, vinna, orka, einingar fyrir orku, afl, mismunandi orkuform svo sem hreyfiorka, þyngdarstöðuorka, varmaorka, fjaðurstöðuorka, einfaldir orkuútreikningar, umbreyting orku úr einu formi í annað, varðveisla orkunnar, nýtanleg orka, orka í náttúrunni, orka í samfélaginu, orkuvinnsla og orkunýting.

X

Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)

Markmiðið er að nemendur

  • hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
  • þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
  • geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
  • séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
  • hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun

Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.

Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.

Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.

X

Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)

Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.

Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.

X

Lokaverkefni (SNU401L)

Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er 30e einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.

Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.

Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.

Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum ogrannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.

Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á sumum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist með ákveðnum hætti á tvö eða þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.

Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.

Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, UgluFræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni

X

Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)

Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.

X

Læsi í faggreinum (ÍET214F)

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur þrói hugmyndir sínar um læsi og hvernig vinna megi með læsi þvert á faggreinar þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna sínar greinar. Í kennaranámi þróa kennaranemar starfskenningu sínu, þ.e. skoða og móta hugmyndir sínar um það hvernig þeir ætla eða vilja starfa sem kennarar

 Lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu þvert á faggreinar og að nemendur kynnist rannsóknum og nýjungum í kennsluháttum sem efla læsi og fagorðaforða á öllum skólastigum.

X

Loftslagsbreytingar og viðkvæm jörð (SFG002F)

Námskeiðið beinir sjónum að loftslagsbreytingum og loftslagsmenntun (e. climate change education). Fjallað verður um orsakir loftslagsbreytinga, þ.e. gróðurhúsaáhrif, varmaflutningur og samspil lofttegunda og geislunar. Rýnt verður í afleiðingar loftslagsbreytinga bæði á náttúru og samfélag, heima og á heimsvísu. Fjallað verður um á líffjölbreytni, uppblástur og landeyðingu, súrnun sjávar, hækkun sjávaryfirborðs og dreifingu ágengra tegunda. Tekin verða dæmi af breytingum á samfélag fólks og búsetusvæði, mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins (t.d. endurheimt votlendis, sjálfbærum lífsstíl og orkugjöfum).

Rýnt verður í áherslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um loftslagsmenntun og slík menntun rædd í samhengi við heimsmarkmið SÞ. Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi.

Kennsla byggist á vikulegum tímum á neti og þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.

X

Íslenskt mál og menntun fjöltyngdra nemenda (ÍET206F)

Fjallað verður um íslensku sem annað mál og menntun fjöltyngdra grunnskólanemenda. Rætt verður um máltöku og máluppeldi og hver sé munurinn á því að öðlast færni í móðurmáli og öðru máli. Sérstök áhersla verður lögð á það sem kennarar þurfa almennt að kunna um íslenskt mál til að geta sinnt vel annars máls nemendum svo að þau nái framförum í þeirri námsgrein sem til umfjöllunar er.

Farið verður í uppbyggingu íslenska málkerfisins, framburð, orðmyndun, beygingar, setningagerð, merkingu orða og orðasambanda, lagskiptingu orðaforðans og ýmislegt sem viðkemur málnotkun, og fjallað um hvað getur helst vafist fyrir fjöltyngdum grunnskólanemendum sem eru að tileinka sér málið. Rætt verður um persónubundinn mun málhafa þegar þeir tileinka sér íslensku sem annað mál, með sérstaka áherslu á hvert móðurmál þeirra er til að geta greint hvar helst sé að vænta erfiðleika við tileinkun íslensku og til að geta brugðist við því.

Í framhaldi af þessu verður unnið með kennslu mismunandi faggreina og hvernig skipuleggja megi hana þannig að hún taki mið af mismunandi getu fjöltyngdra nemenda í íslensku. Meðal annars verður tekið fyrir hvernig hægt er að semja og einfalda texta svo að laga megi þá að getu fjöltyngdra nemenda í íslensku.

X

Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)

Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.

Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Saga, 2. hæð
Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Opið kl. 09:00 - 15:00 alla virka daga
Sími: 525 5950 | Netfang: mvs@hi.is

Samfélagsmiðlar
Fylgdu okkur á FacebookInstagram og YouTube!

Saga bygging HÍ

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.