Skip to main content

Guðfræði, doktorsnám

Guðfræði

180 einingar - Doktorspróf

. . .

Doktorsnám í guðfræði er minnst 180 e að loknu meistara- eða kandidatsnámi. Um er að ræða þriggja ára rannsóknanám við Guðfræði - og trúarbragðafræðideild. Inntökuskilyrði eru MA-prófí guðfræði.

Inntökuskilyrði

Framhaldsnám

MA-próf í guðfræði með fyrstu einkunn (7,25) eða sambærilegt próf. Umsækjendur sem hafa lokið mag. theol.-prófi eða cand. theol.-prófi frá Guðfræði- og trúarbragðafræðideild skulu ljúka MA-námi í guðfræði við deildina áður en þeir sækja um doktorsnám.

Nemendafélög

Nemendur sem stunda doktorsnám á Hugvísindasviði geta gengið í Félag doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands. Þeir eru einnig sjálfkrafa skráðir í Félag doktorsnema á Hugvísindasviði sem vinnur að hagsmunamálum doktorsnema á sviðinu, miðlar upplýsingum til þeirra, tilnefnir fulltrúa doktorsnema í ráð og nefndir og stendur fyrir félagsstarfi meðal doktorsnema á Hugvísindasviði

Hafðu samband

Skrifstofa Hugvísindasviðs er staðsett á 3. hæð í Aðalbyggingu Háskólans við Sæmundargötu 2.

Skrifstofan er opin kl. 10-12 og 13-15 alla virka daga. Hægt er að nálgast upplýsingar í síma 525 4400 eða með tölvupósti á netfangið hug@hi.is.

Nemendur við Hugvísindasvið geta einnig nýtt sér þjónustuborð Háskólans á Háskólatorgi.