Hvar og hvenær á ég að skrá mig í nám? Sjá upplýsingar um grunnnám hér. Sjá upplýsingar um framhaldsnám hér. Sjá upplýsingar um doktorsnám hér. Hvenær byrjar kennslan? Sjá upplýsingar í kennslualmanaki. Er skylda að sækja tíma? Meginreglan er sú að tímasókn sé frjáls. Þó er oft gerð krafa um mætingu í námskeiðum þar sem tímasókn er hluti af námsmati og/eða þar sem kennsla byggist að hluta á framlagi nemenda, s.s. umræðu- og verkefnatímum. Þá eru sum námskeið með mætingarskyldu og eru þau sérstaklega merkt með viðeigandi tákni í kennsluskrá. Nánari upplýsingar um slíkt er að finna í kennsluskránni. Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um inntökuskilyrði, mat á námi, námsskipan o.þ.h.? Hægt er að hafa samband við deildarstjóra til að fá nánari upplýsingar um nám. Sjá upplýsingar um starfsfólk skrifstofu Hugvísindasviðs. Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um skiptinám? Upplýsingar um skiptinám er að finna á vefsvæði Alþjóðasviðs Háskóla Íslands. Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um námsval, úrræði vegna fötlunar og sérþarfa o.þ.h.? Til Nemendaráðgjafar HÍ. facebooklinkedintwitter