Nemendur Háskóla Íslands sem fara í skiptinám eða starfsþjálfun á vegum Erasmus+ eiga kost á að sækja um viðbótarstyrk vegna fötlunar eða heilsufars til að mæta viðbótarkostnaði.
Dæmi um kostnað sem er styrktur:
- Laun aðstoðarmanna
- Ferðakostnaður aðstoðarmanna
- Sérstakt húsnæði til að mæta þörfum nemandans
- Kostnaður vegna ferðaþjónustu
- Flutningskostnaður tækjabúnaðar
Nemandi þarf að skila umsóknareyðublaði, kostnaðaráætlun og vottorði sem staðfestir fötlunina eða veikindin til Alþjóðasviðs.
Alþjóðasvið sækir formlega um styrkinn til Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB fyrir hönd nemanda.
Mikilvægt er að nemandi kynni sér aðbúnað í móttökuskóla/stofnun eins vel og kostur er og upplýsi móttökuaðila fyrr en síðar um fötlun eða heilsufar sitt svo hægt sé tryggja góða þjónustu við upphaf náms eða þjálfunar.
Gagnlegar upplýsingar um aðgengismál og þjónustu háskóla við nemendur með fötlun má finna á eftirfarandi síðum: