Hlutverk launadeildar er að allir starfsmenn Háskólans fái laun sín greidd á réttum tíma og þau séu í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga. Staðsetning: 1. hæð Aðalbyggingar Háskólans – vesturhlutiOpið: kl. 10 - 15 alla virka dagaSími: 525-4390Netfang: laun@hi.is Nauðsynlegt er að öll launagögn berist til launadeildar í síðasta lagi 15. hvers mánaðar til að tryggja að launavinnslu sé lokið á réttum tíma. Útborgun er einu sinni í mánuði, fyrsta dag hvers mánaðar. Spurt og svarað Persónuafsláttur Ef starfsmaður vill nýta persónuafslátt sinn við Háskóla Íslands, skal senda tölvupóst á laun@hi.is. Pósturinn þarf að innihalda þrennt: "Yfirlit til laungreiðanda" er PDF-skjal sem hlaða þarf niður af innra svæði skattur.is. Hafa skal þetta skjal sem viðhengi á póstinum. Tímabil: Taka skal fram tímabil með upphafs- og lokadagsetningu sem gefur til kynna hvenær nýta skal persónuafsláttinn. Hlutfall: Taka skal fram hlutfall í prósentum af persónuafslætti þínum sem skal nýta. Mikilvægt er að hafa í huga að "Yfirlit til laungreiðanda" gefur ekki rétta tölu fyrir mánaðamót fyrr en eftir 15. dags mánaðar á undan. Svo vinsamlega sendið skjalið eftir þann dag. Ef starfsmaður vill hætta að nýta persónuafslátt sinn hjá Háskólanum skal senda póst þess efnis á laun@hi.is. Samgöngusamningur Launadeildin sér um að gera samgöngusamninga við starfsfólk skólans. Hægt er að velja um að fá frítt í íþróttahúsið, eða kaupa 12 mánaða strætókort á verði níu mánaða ásamt því að fá 15.000 krónur endurgreiddar. Skilyrði til þess að geta gert samgöngusamning við Háskólann eru þessi: Starfsmaður þarf að vera fastráðinn í a.m.k. 50% starfi. Starfsmaður skuldbindur sig til þess að ganga/hjóla eða taka strætó í a.m.k. 60% tilvika þegar ferðast er í vinnuna. Hér má nálgast samgöngusamninginn. Einungis þarf að prenta út, skanna og senda á laun@hi.is. Einnig er hægt að koma við á launadeildinni og ganga frá þessu á staðnum. Vinnustund Vinnustund er tímastimplunarkerfið sem Háskóli Íslands notast við. Allir starfsmenn, fyrir utan akademíska, eiga að vera í Vinnustund. Um leið og starfsmaður er ráðinn í starf innan Háskólans fær hann aðgang að Vinnustund. Hér er hlekkur um hvernig skal skrá sig inn í Vinnustund í fyrsta skipti og hvernig sjálfsþjónustan virkar. Ef ekki finnst lausn við vandamálinu þar er hægt að senda póst á laun@hi.is. Hægt er að tengjast Vinnustund í gegnum Uglu á þægilegan hátt. Inn- og útstimplun er innbyggt í Ugluna. Hér eru upplýsingar um Vinnustund í Uglunni. Innheimtumaður ríkissjóðs - frádráttur Þegar starfsmenn ríkisins eru í skuld við tollstjóra, dregst upphæðin sjálfkrafa af launum viðkomandi. Undir frádráttarliðum á launaseðli má sjá upphæðina. Launadeildin hefur ekki upplýsingar um hvernig skuldin er tilkomin en nánari upplýsingar um þennan frádráttarlið er hægt að sjá inn á innri vef Ísland.is eða hjá tollstjóra. Staðfesting á starfstímabili Til að fá staðfestingu á starfstímabili skal senda póst á verkefnisstjóra fræðasviðs þíns. Ef staðfestingin er fyrir Vinnumálastofnun, þá sendir launadeildin rafræna staðfestingu beint til Vinnumálastofnunar. Fæðisfé/matarmiðar Launadeildin heldur utan um skráningu fæðisfjár og matarmiða. Til þess að eiga rétt á þessum hlunnindum þarf að vera í a.m.k. 50% starfi. Ef starfsmaður vill breyta á milli fæðisfjár og matarmiða skal senda póst á laun@hi.is. Nemendur fá einnig afslátt af fæði í Félagsstofnun stúdenta en hér má sjá upplýsingar um þau hlunnindi nemenda. Orlof Starfsmenn vinna sér ávallt inn orlof með störfum sínum við Háskóla Íslands. Þegar um fulla vinnu er að ræða er yfirleitt búist við því að starfsmenn taki orlofið sitt út sem frí á orlofstímabili en þegar um minni og tímabundna samninga er að ræða er orlofið stundum greitt út meðfram mánaðarlaunum. Þetta er þó samningsatriði sem kemur fram á ráðningarsamningnum. Orlof er greitt út í maí af vörsluaðilanum Arion banka Nánari upplýsingar um orlofstöku starfsfólks er að finna hér. Verktakagreiðslur Launadeildin sér ekki um verktakagreiðslur. Ekki er unnt að vera launþegi ásamt því að fá verktakagreiðslur frá Háskólanum. Gjaldkeri sér um afgreiðslu reikninga og má hafa samband við hann í gegnum netfangið birnabjo@hi.is. Starfsmannahandbók Hér er hlekkur á starfsmannahandbókina en þar er að finna ógrynni af upplýsingum. Launataxtar Hér má sjá algengustu launatöflur innan Háskólans. Sjá má allar launatöflurnar frá árinu 2009 á síðu Fjársýslunnar. Launatafla FH stjórnsýsla og aðrir 1.1.2021 xlsx Launatafla FH akademískir 1.1.2021.xlsx Launatafla Sameykis 1.1.2021.xlsx Launatafla stundakennara 1.1.2021.xlsx Starfsmenn deildar Anna ÓlafsdóttirVerkefnisstjóri5255170annaol [hjá] hi.is Ásta SigmarsdóttirVerkefnisstjóri5254196astas [hjá] hi.is Bjarni BjarnasonVerkefnisstjóri5254577bbjarnason [hjá] hi.is Eyrún Lind MagnúsdóttirVerkefnisstjóri5254297elm [hjá] hi.is Jóhann Ólafur KristinssonDeildarstjóri5254587jok [hjá] hi.is Lóa WilbergVerkefnisstjóri5255962loa [hjá] hi.is Sveinbjörn TraustasonVerkefnisstjóri5255845svt [hjá] hi.is Tengt efni Fjármálasvið Reikningshald Fjársýslan - launatöflur emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.