Skip to main content
30. maí 2022

Þúsundasti doktorinn brautskráður frá Háskóla Íslands

Þúsundasti doktorinn brautskráður frá Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Qiong Wang, nemandi við Læknadeild Háskóla Íslands, varð á dögunum þúsundasti doktorsneminn til þess að verja ritgerð sína við skólann frá stofnun hans árið 1911. Aðeins sjö ár eru síðan fimm hundraðasti doktorsneminn lauk námi við skólann.

Það er til marks um breytta tíma í kjölfar kórónuveirufaraldursins og sterka stöðu Háskóla Íslands sem alþjóðlegs rannsóknarháskóla að þúsundasti doktorsneminn er frá Kína og þar að auki fór vörnin fram um netið þar sem bæði doktorsefnið og andmælendur voru stödd úti í heimi. Aðeins stjórnandi varnarinnar, Þórarinn Guðjónsson, prófessor og deildarforseti við Læknadeild, og leiðbeinendur Qiong Wang voru staddir í Hátíðasal þegar vörnin fór fram.

Doktorsritgerð Qiong Wang er á sviði líf- og læknavísinda og ber heitið „Auðkenning efnaskiptabreytinga samfara EMT í brjóstaþekjuvef“.  Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á framgangi brjóstakrabbameina sem eru helsta dánarorsök meðal kvenna af völdum krabbameins á Íslandi og um heim allan. Rannsóknin hverfðist um svokallaða bandvefsumbreytingu (EMT) sem er frumuþroskunarferli sem talið er að æxlisfrumur geti virkjað. EMT er jafnframt talið geta aukið dreifingu æxlisfrumna milli vefja og þar með myndun meinvarpa. Umsjónarkennari og leiðbeinandi Qiong Wang var Óttar Rolfsson prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Margrét Þorsteinsdóttir prófessor, Skarphéðinn Halldórsson prófessor og Sævar Ingþórsson dósent.

Hundrað og þrjú ár eru síðan fyrsta doktorsvörnin fór fram við Háskóla Íslands en það var Páll Eggert Ólason, lögfræðingur og fyrrverandi prófessor og rektor HÍ, sem fyrstur hlaut doktorsnafnbót við skólann fyrir rit sitt um Jón biskup Arason. Fyrst kvenna til að ljúka doktorsprófi var Selma Jónsdóttir, listfræðingur og fyrsti forstöðumaður Listasafns Íslands, árið 1960. Doktorsverkefni hennar fjallaði um býzanska dómsdagsmynd í Flatatungu.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að fyrsta vörnin fór fram árið 1919 og óhætt er að segja að doktorsnám við Háskóla Íslands hafi sprungið út á síðustu tveimur áratugum. Undanfarin ár hafa á bilinu 60-90 doktorsnemar varið ritgerðir sínar við skólann og aðeins eru tæp sjö ár síðan 500. doktorinn lauk námi frá skólanum. 

Þessa stundina stunda um 700 nemendur doktorsnám við Háskóla Íslands og leggja þannig sitt af mörkum til þekkingarleitar hins alþjóðlega vísindasamfélags um leið og þau gera Háskóla Íslands kleift að rækja samfélagshlutverk sitt sem stærsti og víðtækasti háskóli landsins.

„Þetta eru mjög merk og ánægjuleg tíðindi og nýja doktornum fylgja að sjálfsögðu bestu hamingjuóskir,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. „Það er ljóst að efling doktorsnámsins við Háskóla Íslands hefur styrkt verulega stöðu hans á sviði rannsókna og nýsköpunar og þess sér ótvírætt stað á alþjóðlegum vettvangi. Þann góða árangur ber ekki síst að þakka áherslu á doktorsnám og framlagi doktorsnema til aukinna rannsókna við skólann.“

Tölfræði um doktorsnám Háskóla Íslands má finna á vef skólans.

Qiong Wang, nemandi við Læknadeild Háskóla Íslands, ver doktorsritgerð sína um netið.
Doktorsvörn Qiong Wang fór fram um netið þar sem bæði doktorsefnið og andmælendur voru stödd úti í heimi. Aðeins stjórnandi varnarinnar, Þórarinn Guðjónsson, prófessor og deildarforseti við Læknadeild, og þeir Óttar Rolfsson og Sævar Ingþórsson úr hópi leiðbeinenda Qiong Wang voru staddir í Hátíðasal þegar vörnin fór fram. MYND/Kristinn Ingvarsson