Skip to main content
9. desember 2020

Silja Bára valin til þátttöku í Fulbright Arctic Initiative III

Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, og Sigríður Kristjánsdóttir, deildarforseti skipulags- og hönnunardeildar við Landbúnaðarháskóla Íslands, hafa verið valdar til þátttöku í Fulbright Arctic Initiative III (FAI), flaggskipi Fulbright á sviði norðurskautsrannsókna. Valið var sameiginlega í höndum stjórnar Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi og stjórnar Fulbright í Bandaríkjunum.

Þetta er þriðja lota FAI, en markmið áætlunarinnar er að styrkja alþjóðlegt vísindasamstarf á sviði norðurskautsfræða. FAI stuðlar að þverfaglegu samstarfi þar sem mál tengd norðurskautssvæðinu eru skoðuð með heildstæðum hætti. Áhersla er lögð á hagnýtar rannsóknir sem nýtast við að leysa sameiginlegar áskoranir. Um er að ræða 18 mánaða verkefni sem hefst vorið 2021 með þátttöku 18 fræði- og vísindamanna frá ríkjum Norðurskautsráðsins. FAI er einstakt tækifæri til alþjóðlegs samstarfs í norðurskautsrannsóknum þar sem þátttakendur efla tengslanetið, heimsækja valin norðurskautssvæði og vinna bæði að einstaklingsrannsóknum og sameiginlegum verkefnum. Í fyrri lotum FAI tilnefndi Ísland einn styrkþega, en vegna fjárframlags frá mennta- og menningar-, umhverfis- og auðlinda-, og utanríkisráðuneytunum fékk Ísland úthlutað tveimur sætum í þriðju lotunni.

Unnið verður í þremur vinnuhópum sem hafa hver sitt áherslusvið: öryggismál og samstarf (Arctic Security and Cooperation), innviðir á breytingartímum (Arctic Infrastructure in a Changing Environment) og heilbrigðismál (Community Dimensions of Health). Silja Bára tekur þátt í hópi eitt og Sigríður í hópi tvö.

Báðir fræðimenn hafa lagt mikið af mörkum til háskólasamfélagsins á síðustu árum. Þær hafa víðtæka reynslu af alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi, hafa setið í fjölmörgum nefndum og eftir þær liggja mörg ritverk á fagsviðum þeirra.

Silja Bára lauk doktorsnámi í stjórnmálafræði frá University College Cork árið 2018 og hlaut framgang í stöðu prófessors við Háskóla Íslands fyrr á þessu ári. Hún er jafnframt rannsóknarstjóri Höfða - friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Rannsókn Silju Báru innan FAI verður á sviði öryggismála í víðu samhengi og frá sjónarhorni íbúa norðurskautssvæða.

Sigríður lauk doktorsnámi 2007 í umhverfisfræðum frá University of Birmingham. Hún hóf störf við LBHÍ árið 2004 en tók við stöðu deildarforseta fyrr á þessu ári. Rannsóknarverkefni Sigríðar snýr að sjálfbærri þróun á norðurskautinu, með áherslu á skipulagsmál og landnýtingu.

Frekari upplýsingar um Fulbright Arctic Initiative má finna her:
www.fulbright.is/fulbright-arctic-initiative-iii/
www.cies.org/arctic

Silja Bára Ómarsdóttir