Skip to main content
2. júní 2020

Rætt um leiðir út úr kófinu í beinni frá Háskóla Íslands

„Út úr kófinu – heilsa, efnahagur og stjórnmál“ er yfirskrift málþings sem verður í beinni útsendingu frá Háskóla Íslands á morgun, miðvikudaginn 3. júní, kl. 13-15.30. Þar munu sérfræðingar innan og utan Háskólans ræða leiðina út úr COVID-19-faldrinum og áhrif opnunar landmæra Íslands út frá lýðheilsu- og efnahagssjónarmiðum en einnig hvaða áhrif samkomubann stjórnvalda getur haft á afmarkaða þjóðfélagshópa, ekki síst börn. Sérstakur gestur á fundinum er Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Upptökur af öllum erindum á málþinginu má nálgast á YouTube-rás Háskólans

Dagskrá útsendingarinnar:

Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómalækningum, er fundarstjóri.

13.00 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands - Opnunarávarp

13.05 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir - „Leiðir út úr COVID-19: sóttvarnasjónarmið"

13.25 Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir - „Næstu skref - sýn smitsjúkdómalæknis"

13.45 Urður Njarðvík, prófessor í sálfræði: „Með storminn í fangið: Áhrif samkomubanns á líðan barna með ADHD og foreldra þeirra"

20 mínútna kaffihlé 14.05-14.25

14.25 Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði: „Er opnun landamæra forsenda efnahagsbata?"

14.45 Tómas Brynjólfsson, hagfræðingur og skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu: „Hagstjórn í takmörkuðu skyggni“

15.05 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra: „Hugleiðingar um faraldur“

Vegna takmarkana á samkomum og nálægðartakmörkun í tengslum við faraldurinn er ekki hægt að mæta á staðinn. Öll eru hvött til fylgjast með málþinginu í beinni útsendingu. Einnig verður hægt að horfa á upptöku af því eftir á.
 

Reykjavík