Skip to main content
4. júní 2020

Nýr sjóður styrkir nýsköpun við Háskóla Íslands

""

Nýsköpunarsjóður dr. Þorsteins Inga Sigfússonar eðlisfræðings hefur verið stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði í dag skipulagsskrá sjóðsins ásamt stofnanda hans, Bergþóru Karen Ketilsdóttur, ekkju Þorsteins Inga. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að auknum áhuga á nýsköpun og er hlutverk hans að styrkja efnilega frumkvöðla, nemendur eða vísindamenn, sem með einhverjum hætti sinna verkefnum eða rannsóknum er lúta að nýsköpun. Stofnfé sjóðsins er 1,5 milljónir króna.

Sjóðurinn er stofnaður til minningar um dr. Þorstein Inga Sigfússon (f. 4. júní 1954, d. 15. júlí 2019). 

Þorsteinn Ingi lauk doktorsnámi í eðlisfræði frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1983 og var kjörinn „Research Fellow“ við Darwin College árið áður. Hann hóf störf sem fræðimaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands árið 1982 og síðar sem prófessor í eðlisfræði við háskólann. Fjöldi meistara- og doktorsnema stundaði rannsóknir undir hans leiðsögn. Þorsteinn Ingi vann ötullega að tengingu háskóla og atvinnulífs og kom að stofnun og stjórnarmennsku sprotafyrirtækja á mörgum sviðum. Hann var frumkvöðull á sviði orkurannsókna á Íslandi, sat í stjórn Íslenskrar nýorku og var eindreginn talsmaður þess að draga úr losun koltvíoxíðs í andrúmslofti. Um árabil var Þorsteinn Ingi formaður framkvæmdanefndar alþjóðasamtakanna IPHE (International Partnership for the Hydrogen Economy) og einnig meðlimur í Samráðsþingi Columbia-háskóla um loftslagsbreytingar (Roundtable on Climate Change). Þorsteinn Ingi varð forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) við stofnun hennar 2007. Þar beitti hann kröftum sínum til uppbyggingar víðtækrar frumkvöðlastarfsemi og miðlunar þekkingar. Eftir Þorstein Inga liggur fjöldi ritrýndra vísindagreina auk annarra skrifa. Árið 2004 var Þorsteinn Ingi sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir vísindastörf og framlag til hátækniatvinnugreina. Hann hlaut rússnesku Alheimsorkuverðlaunin árið 2007 fyrir framlag sitt til vetnismála.

Rektor Háskóla Íslands skipar stjórn sjóðsins og í henni sitja Hermann Kristjánsson, verkfræðingur og frumkvöðull, dr. Þór Sigfússon hagfræðingur og dr. Guðrún Pétursdóttir, dósent við Háskóla Íslands. Áætlað er að úthluta árlega úr sjóðnum á afmælisdegi Þorsteins Inga.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta og starfsfólk. Sjóðirnir eru mikil lyftistöng fyrir háskólann, sem hefur notið mikils velvilja af hálfu fjölmargra einstaklinga í gegnum tíðina en þeir hafa af miklum rausnarskap lagt fé í styrktarsjóði sem allir miða að því að efla vísindarannsóknir og afla nýrrar þekkingar, samfélaginu til heilla.

Frá undirritun skipulagsskrár hins nýja sjóðs. Standandi frá vinstri: Árni Sigfússon, Guðrún Pétursdóttir, Þór Sigfússon, Halldóra Vífilsdóttir og Hermann Kristjánsson. Sitjandi eru Jón Atli Benediktsson og Bergþóra Karen Ketilsdóttir
Jón Atli Benediktsson og Bergþóra Karen Ketilsdóttir undirrita skipulagsskrána.