Skip to main content
4. febrúar 2019

Lighting Up Reykjavík sigraði í Reboot Hack

""

Gagnvirka heimasíðan Lighting Up Reykjavík sem miðar að því að auðvelda ferðamönnum, sem hafa skamman tíma í Reykjavík, að finna áhugaverða afþreyingu sigraði í Reboot Hack, fyrsta hakkaþoninu hér á landi sem skipulagt er af háskólanemum fyrir aðra háskólanema. Alls tóku hátt í 70 innlendir og erlendir nemendur þátt í keppninni sem fram fór á Háskólatorgi um helgina. 

Þrír nemendur við Háskóla Íslands, þær Fríða Snædís Jóhannesdóttir, Kristjana Björk Barðdal og Sara Björk Másdóttir, skipulögðu keppnina en hún var hluti af alþjóðlegri mótaröð hakkaþona undir hatti Major League Hacking.

Reboot Hack er nýsköpunarkeppni eða uppfinningamaraþon þar sem áherslan er á að þróa tæknilausn algjörlega frá grunni. Afurðin getur verið í formi vefsíðu, smáforrits, smátækis eða hvernig tækni sem er. Þátttakendur í keppninni skipuðu sér í þriggja til fimm manna lið og höfðu þau sólarhring til þess að takast á við eina af þeim áskorunum eða tæknitengdu verkefnum sem samstarfsaðilar keppninnar höfðu lagt fram og miða að því að auðvelda líf hins almenna borgara. Áskorun Snjallborgarinnar Reykjavík fólst í því að ná til ferðamanna sem að standa á Lækjartorgi og völdu flest lið að takast á við hana. Þá fólst áskorun frá verkefnastofu um stafrænt Ísland í að endurhanna einhvern hluta opinberrar þjónustu með þarfir notenda í fyrirrúmi og áskorun fyrirtækisins Men&Mice var að nýta svökölluð DNS-gögn á góðan máta. Enn fremur lagði Íslandsbanki þá áskorun fyrir áhugasama þátttakendur að búa til bankaapp sem mætti kröfum nútímaneytanda og Microsoft fól áhugasömum þátttakendum að nýta skýjalausnina Azure í lausninni sinni.

Hverjar voru vinningstillögurnar?
Við þróun hugmyndana nutu liðin leiðsagnar frá mentorum úr Háskóla Íslands og íslensku atvinnulífi og að endingu áttu þau að kynna hugmynd sína fyrir dómnefnd keppninnar. Að lokinni þeirri kynningu voru úrslit kunngjörð en þau voru sem hér segir:
-    Í 1. sæti varð verkefnið Lighting Up Reykjavík sem er vefsíða sem mælir með afþreyingu fyrir ferðamenn sem hafa stuttan tíma í Reykjavík en vilja nýta hann til hins ítrasta. Hugmyndir aðstandenda verkefnisins gera ráð fyrir stuðst yrði við nýjustu tækni, eins og AR-tækni (e. augmented reality) og raddstýringu, í gegnum Alexa í Amazon Echo. Sigurliðið skipa þau Breki Pálsson, Ólafur Jón Valgeirsson, Valgerður Jónsdóttir, Sesar Hersisson og Jóhannes Kári Sólmundarson. Þau eru öll nemendur við Háskóla Íslands.
-    Í 2. sæti varð verkefnið Driving Iceland sem snerist um að rafvæða ökubókina sem þeir sem hyggjast taka bílpróf þurfa að fylla út. Hún er nú eingöngu á pappír.
-    Í 3. sæti varð verkefnið Stræto sem hafði það að markmiði að nýta gögn frá Strætó til þess að koma skilaboðum til notenda þjónustunnar um seinkanir á strætisvögnum með tístum á Twitter. Hugmyndin kviknaði hjá einum meðlima hópsins sem lenti í því að koma of seint á hakkaþonið vegna þess strætóinn hans var seinn.

Í verðlaun hlutu vinningshafar m.a. snjallúr, heyratól, myndavélar, miða á UTmessuna og ýmislegt fleira. Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir bestu verkefnin í hverri áskorun fyrir sig og jafnframt fyrir bestu liðsheildina.

Hvað verður um tillögurnar sem urðu til um helgina?
Ljóst er að einhver verkefnanna mun fara í áframhaldandi þróun því fulltrúar frá samstarfsaðilum keppninnar lýstu yfir vilja til frekara samtals um framtíð lausnanna á næstunni. Þá munu aðstandendur Reboot Hack standa fyrir uppskeruhátíð í Kaldalóni í Hörpu laugardaginn 9. febrúar kl. 10-12 í tengslum við UTmessuna. Þar verður viðburðurinn gerður upp, fjallað nánar um hakkaþonmenningu auk þess sem vinningsliðið Lighting up Reykjavík kynnir hugmynd sína.

Aðstandendur Reboot Hack vonast jafnframt til að keppnin verði að árlegum viðburði í góðu samstarfi við Háskóla Íslands og framúrskarandi fyrirtæki.

Dómnefnd Reboot Hack var skipuð þeim Arnheiði Guðmundsdóttur, framkvæmdarstjóra Ský og UTmessunar, Védísi Hervöru Árnadóttur, samskipta- og miðlunarstjóra Viðskiptaráðs Íslands, Kristni Jóni Ólafssyni, verkefnisstjóra Snjallborgarinnar Reykjavíkur, Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur, aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands, Söru Björk Másdóttur, verkefnastýru Reboot Hack, og Gregor Engelmann, forsvarsmanni Major League Hacking.

Fleiri myndir frá keppninni má nálgast á myndasíðu Háskóla Íslands.

Breki Pálsson, Jóhannes Kári Sólmundarson og Sesar Hersisson
Sigurvegarar ásamt dómnefnd og skipuleggjendum.
Skipuleggjendur keppninnar, þær Kristjana Björk Barðdal, Fríða Snædís Jóhannesdóttir og Sara Björk Másdóttir.