Skip to main content
4. nóvember 2020

HÍ og bandaríska sendiráðið virkja nýsköpunarkraft kvenna í nýjum hraðli

HÍ og bandaríska sendiráðið virkja nýsköpunarkraft kvenna í nýjum hraðli - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands stendur í vetur fyrir nýsköpunarhraðli fyrir konur undir merkjum Academy for Woman Entrepreneurs (AWE) í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi.

Markmið hraðalsins er að efla konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar í gegnum fræðslu og stuðning og efla tengslanet þeirra.

Verkefnið er á vegum bandarískra stjórnvalda og er í boði víða um heim. Það samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona og vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um.

Dreambuilder-netnámskeiðið samanstendur af þrettán fyrirlestrum sem hægt er að horfa á hvar og hvenær sem er. Vinnuloturnar á vegum Háskólans verða enn fremur sérsniðnar að íslenskum aðstæðum og m.a. farið yfir markaðsmál, stofnun fyrirtækja á Íslandi, tengslanet, öflun styrkja, hugverkamál, samfélagsmiðla og annað sem gott er að þekkja við stofnun og þróun fyrirtækis. 

Meðal þeirra sem miðla af reynslu sinni í gegnum námskeiðið sem mentorar eru Fida Abu Libdeh, forstjóri og annar stofnenda GeoSilica, og Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, vöru- og markaðsstjóri Florealis, sem báðar státa af mikilli reynslu innan nýsköpunargeirans og þróun fyrirtækja.

Konur á öllum aldri geta sótt um að taka þátt í hraðlinum og verða 20-25 umsækjendur valdir til þátttöku.

Stafrænn kynningarfundur á hraðlinum verður haldinn 12. nóvember kl. 12 og hægt að skrá sig á kynningarfundinn á vefsíðu verkefnisins.

Opið verður fyrir umsóknir til og með 29. nóvember og hægt að senda inn umsókn hér. 

Facebook-viðburður fyrir kynningarfundinn.

Ýmsir aðilar koma að skipulagi vinnulota hraðalsins, þar á meðal Félag kvenna í atvinnulífinu, Ungar athafnakonur og Women of multicultural ethnicity network in Iceland. Þá mun Tengslatorg Háskóla Íslands einnig bjóða þátttakendum stuðning á meðan nýsköpunarhraðlinum stendur. 

Virkjum nýsköpunarkraft kvenna!
 

"Fida Abu Libdeh og Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch"