Skip to main content
30. júní 2020

HÍ framarlega á fjölmörgum fræðasviðum samkvæmt nýjum Shanghai-listum

""

Háskóli Íslands er í 6. sæti yfir fremstu háskóla heims á sviði fjarkönnunar og í hópi þeirra 40 bestu á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði samkvæmt hinum virta lista Shanghai Global Ranking of Academic Subjects sem birtur var í upphafi viku. Alls kemst skólinn á 15 lista ShanghaiRanking yfir bestu háskóla heims á afmörkuðum fræðasviðum að þessu sinni.

Samtökin ShanghaiRanking Consultancy hafa um árabil birt lista yfir fremstu háskóla heims út frá heildarframmistöðu þeirra, svonefndan Shanghai-lista. Samtökin hafa einnig tekið saman lista yfir þá fremstu á afmörkuðum vísinda- og fræðasviðum. Shanghai-listinn er annar af tveimur virtustu og áhrifamestu matslistunum yfir bestu skóla heims. Hinn er Times Higher Education World University Rankings og hefur Háskóli Íslands verið á honum í hátt í áratug.

Háskóli Íslands hefur verið á listum ShanghaiRankings Consultancy allt frá árinu 2017. Við mat á frammistöðu háskóla styðjast samtökin við ýmsa þætti í starfsemi þeirra, þar á meðal birtingu vísindagreina í virtum fræðitímaritum, fjölda tilvitnana annarra vísindamanna í rannsóknir á vegum skólans, frammistöðu háskóla út frá starfsmannafjölda og fjölda starfsmanna sem hjóta vísindaverðlaun fyrir framlag sitt innan einstakra fræðagreina.

ShanghaiRanking Consultancy birti nú lista yfir fremstu háskóla heims á yfir 50 ólíkum fræðasviðum en mat samtakanna náði til alls 4.000 háskóla víða um heim og komust 1.800 þeirra á lista að þessu sinni.

Samkvæmt listanum í ár er Háskóli Íslands sá sjötti besti í heiminum á sviði fjarkönnunar en hún felst m.a. í því að taka stafrænar myndir úr flugvélum og gervitunglum og vinna úr þeim hvers kyns upplýsingar um yfirborð jarðarinnar. Þess má geta að skólinn var í sama sæti á listanum í fyrra og hefur verið meðal 10 bestu háskóla í heimi í fjarkönnun síðan byrjað var að birta þessa lista. Þá er Háskólinn í 40. sæti yfir þá fremstu á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði og í hópi 150 bestu á sviði jarðvísinda og hjúkrunarfræði. Enn fremur er skólinn í sæti 151-200 á sviði lífvísinda, í 201.-300. sæti innan landfræði, líffræði mannsins, stjórnmálafræði og ferðamálafræði og í 301.-400. sæti á sviði loftslagsvísinda, lýðheilsuvísinda og klínískrar læknisfræði. Enn fremur skilar frammistaða skólans honum í hóp 500 bestu á sviði vistfræði, sálfræði og hagfræði en þetta er í fyrsta sinn sem skólinn kemst á lista í síðastnefndu greininni.

Lista ShanghaiRanking Consultancy sem nær til fræðigreinaog upplýsingar um grundvöll matsins má nálgast á vefsíðu ShanghaiRanking Consultancy.

Von er á nýjum Shanghai-lista, þar sem horft er til heildarárangurs háskóla, síðar á þessu ári.
 

 

Aðalbygging Háskóla Íslands speglast í glugga Háskólatorgs