Skip to main content
19. október 2020

Háskólatónleikar hefja göngu sína á nýjan leik á netinu

""

Um áratugabil, og raunar í hálfa öld, hefur það verið hefð í Háskóla Íslands að standa fyrir svofelldum Háskólatónleikum. Um mánaðarlega viðburði er að ræða, á haust- og vormisseri, og fara þeir fram í byggingum Háskólans. Fyrstu tónleikar á þessu hausti fara fram miðvikudaginn 21. október nk. kl. 12.15 í Hátíðarsal Aðalbyggingar. Er það djassgítarleikarinn Mikael Máni sem mun ríða á vaðið ásamt hljómsveit og leika eigið efni en mikið lof hefur verið borið á leik þessa efnilega tónlistarmanns undanfarin misseri, hér heima og erlendis. Tónleikunum verður streymt í ljósi yfirstandandi samfélagshamlana og salurinn verður tómur, utan tæknifólks og tónlistarmanna.   

Nýr umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen, aðjunkt í félagsfræði, og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ á þessum komandi vetri. „Þetta er mikið og gott bú sem ég tek við og ég vil nota þetta tækifæri og drjúpa höfði fyrir Margréti Jónsdóttur prófessor sem hefur haldið utan um þessa röð af einstakri fagmennsku og elju undanfarna áratugi. Hennar óeigingjarna starf hefur byggt glæsilega undir þessa hefð sem tónleikarnir eru löngu orðnir að.“

Arnar segist taka eigin slagorð alvarlega og leitast verði við að fá til samstarfs tónlistarmenn sem tilheyra alls kyns geirum, svosem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álitlegt þykir hverju sinni. „Það verður byggt á góðum grunni um leið og við þenjum röðina út í takt við nýja tíma. Fanga verður því leitað eins víða og kostur er. Einnig verður sérstök áhersla á að styðja við unga og efnilega listamenn og frumflutningi nýrra verka verður og gert hátt undir höfði.“

Djassgítarleikarinn Mikael Máni sem mun ríða á vaðið á fyrstu Háskólatónleikum haustsins ásamt hljómsveit og leika eigið efni en mikið lof hefur verið borið á leik þessa efnilega tónlistarmanns undanfarin misseri, hér heima og erlendis.

Arnar segir afar mikilvægt að keyra röðina af stað í þessu árferði og með því lagi sem sóttvarnir gera kröfu um. „Menningarstarfsemi nærir sálina, gleður og eykur kraft,“ útskýrir hann. „Ég vil segja að það sé lífsnauðsyn að ýta þessu úr vör. Háskóli Íslands gerir sér líka far um að endurspegla og sinna lista- og menningarlífi landans. Hér eru t.a.m. starfræktir tveir kórar, Háskólakórinn og Kvennakór við Háskóla Íslands, skólinn hefur á að skipa frábæru listasafni, sem um þessar mundir fagnar 40 ára afmæli með glæsilegri sýningu í byggingum skólans, og svo mætti áfram telja. Háskólinn á líka að styðja við og ýta undir listastarfsemi en það er einmitt það sem þessi röð gerir.“ 

Fram undan eru svo tónleikar með nútímatónlistarsveitinni Dymbrá 11. nóvember, en hún er skipuð kornungum stúlkum sem slógu í gegn á Músíktilraunum fyrir tveimur árum. Hin vel þokkaða sveit Umbra mun þá flytja jólatónlist með sínu annálaða nefi 16. desember. Arnar segist þá þegar vera farinn að skipuleggja vordagskrána.

Smellið hér til að fara inn á tónleika Mikaels Mána á miðvikudag.

Arnar Eggert Thoroddsen