Skip to main content
23. mars 2020

Framkvæmd prófa og námsmats vegna COVID-19 

""

Rektor Háskóla Íslands sendi eftirfarandi tilkynningu til starfsfólks og stúdenta 23. mars:

„Kæru nemendur og starfsfólk. 

Neyðarstjórn Háskóla Íslands fundaði í morgun (23. mars 2020) til að fara yfir stöðu mála varðandi COVID-19. 

Í framhaldi af fundi neyðarstjórnar og í kjölfar samþykktar háskólaráðs á föstudag, um breytt fyrirkomulag á námsmati og prófum vegna COVID-19, fundaði ég nú í morgun með helstu stjórnendum Háskólans þar sem samþykktin var útfærð eins og hér segir:
•    Próf verða ekki haldin í húsakynnum Háskóla Íslands á þessu misseri heldur verður framkvæmd prófa og námsmat í samræmi við ákvörðun háskólaráðs 20. mars sl. sem heimilar fræðasviðum og deildum að ákveða tilhögunina í samráði við kennslusvið. 
•    Kennarar og deildir geta farið mismunandi leiðir við að útfæra námsmat í stað hefðbundinna prófa í húsakynnum Háskólans. Umsjónarkennarar í samráði við fræðasvið og deildir munu leitast við að kynna fyrir helgi breytta framkvæmd prófa og námsmats, og eigi síðar en 30. mars nk. Stjórnendur skólans hvetja fræðasvið, deildir og kennara til að taka tillit til þeirra krefjandi aðstæðna sem nú eru uppi og létta álagi af nemendum í tengslum við námsmat þegar hægt er.
•    Markmiðið er að nemendur geti lokið þeim námskeiðum sem þeir eru skráðir í á vormisseri 2020 og þeim námskeiðum haustmisseris 2019 sem eru á auglýstri próftöflu vegna sjúkra- og endurtökuprófa. Haft verður samráð við fulltrúa nemenda um breytta framkvæmd prófa og námsmats eftir því sem kostur er. 

Minnt á að almennar upplýsingar er að finna á COVID-19 síðu Háskóla Íslands. Einnig minnum við nemendur á netspjallið. 

Starfsfólk er beðið um að tilkynna um sóttkví eða smit til næsta yfirmanns. Nemendur eru vinsamlega beðnir um að tilkynna slíkt til deildar. Fræðasvið upplýsi neyðarstjórn í tölvupósti til neydarstjorn@hi.is.

Verum varkár og virðum leiðbeiningar stjórnvalda um hreinlæti og smitvarnir. Við erum öll almannavarnir.

Með góðri kveðju,

Jón Atli Benediktsson, rektor“
 

í vatnsmýri