Skip to main content
19. mars 2018

Doktorsvörn í Náms- og starfsráðgjöf - María Dóra Björnsdóttir

María Dóra Björnsdóttir varði doktorsritgerð sína Mat á áhrifum náms- og starfsráðgjafar fyrir framhaldsskólanema (e. Evaluation of career interventions. Short- and long-term outcomes for students finishing upper secondary school in Iceland) þann 6. apríl síðastliðinn í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Doktorsvörnin markar ákveðin tímamót því hún er sú fyrsta sem haldin hefur verið í náms- og starfsráðgjöf. 

Andmælendur voru þau Dr. Susan C. Whiston, prófessor við Indiana University Bloomington og Dr. Norman E. Amundson, prófessor við University of British Columbia.

Leiðbeinendur voru Dr. Sif Einarsdóttir og Dr. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessorar í Náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands

Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Guðmundur B. Arnkelsson, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Ísands, Dr. Janet G. Lenz, sérfræðingur við Florida State University og Dr. Marie S. Hammond, dósent við Tennessee State University.

Doktorsvörninni stýrði dr. Hanna Björg Sigurjónsdóttir, prófessor og varadeildarforseti Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands

Ágrip af rannsókninni:

Megintilgangur rannsóknarinnar var að meta áhrif tveggja nálgana í náms- og starfsfræðslu fyrir framhaldsskólanemendur. Náms- og starfsfræðsla, byggð á ráðgjöf og kennslu, var hönnuð fyrir tvo hópa. Önnur nálgunin (e. Icelandic Developmental-focused Intervention; IDI) nýtti efni og leiðir sem hafa verið notaðar hérlendis og byggja á fjölþættum fræðilegum grunni. Hin nálgunin (e. Cognitive Information Processing-based intervention; CIP) byggir á kenningu um hugræna úrvinnslu upplýsinga og leggur áherslu á ákvörðunartökuferlið sem slíkt. Allir nemendur í útskriftar- og lokaáföngum í fjórum framhaldsskólum tóku þátt í náms- og starfsfræðslu sem fram fór í fjórum kennslustundum í hverjum skóla en nemendur þriggja skóla voru í samanburðarhópi. Viku eftir að fræðslu lauk sýndu niðurstöður að þátttakendur í CIP hópi höfðu meira sjálfstraust varðandi ákvarðanatöku um nám og störf heldur en þátttakendur í samanburðarhópi og að almenn lífsánægja þeirra var meiri en í IDI hópi. Við eins árs eftirfylgd reyndust þátttakendur í CIP og IDI hópum ekki frábrugðnir þátttakendum í samanburðarhópi og náms- og starfsfræðslan hafði ekki áhrif á náms- og starfsval þátttakenda.

Þessi fyrsta rannsókn á árangri náms- og starfsfræðslu meðal framhaldsskólanema hérlendis veitir náms- og starfsráðgjöfum, menntastofnunum og stjórnvöldum mikilvægar upplýsingar um áhrif fræðslu. Í fyrsta lagi virðast framhaldsskólanemendur þurfa skipulagðari náms- og starfsfræðslu en útskriftar- og lokaáfangar hafa innihaldið hingað til, jafnvel stutt fræðsla eins og hér er lýst hefur jákvæð áhrif allavega til skamms tíma. Í öðru lagi lítur út fyrir að ráðgjafarlíkan um hugræna úrvinnslu upplýsinga (CIP) sé gagnlegt á Íslandi fyrir verðandi stúdenta sem standa frammi fyrir því að taka ákvörðun um nám og starfsvettvang. Í þriðja lagi styður sú staðreynd að ekki tókst að staðfesta langtímaáhrif við þá ályktun að nemendur þurfi meiri ráðgjöf. Kerfisbundin náms- og starfsfræðsla í gegnum allt skólakerfið myndi styðja nemendur við að verða sjálfstæðari í náms- og starfsvali við lok framhaldsskóla og auðvelda þeim að stjórna eigin náms- og starfsferli út lífið. Það ætti því að vera hagsmunamál íslenskra stjórnvalda að koma á fót stefnu í náms- og starfsfræðslu á öllum skólastigum.

María Dóra Björnsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1963. Hún lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1997, diplóma í námsráðgjöf árið 1999 og meistaraprófi í náms- og starfsráðgjöf árið 2007 frá sama skóla. Hún hóf doktorsnám í náms- og starfsráðgjöf árið 2008. María var náms- og starfsráðgjafi í Háskóla Íslands frá 1999 til 2011 og hefur gegnt stöðu deildarstjóra náms- og starfsráðgjafar háskólans frá 2011.
Hafa má samband við Maríu ef frekari upplýsinga er óskað (s: 8680079, netfang: mdb@hi.is).

María Dóra Björnsdóttir