Skip to main content
21. febrúar 2022

Auglýst eftir hugmyndum fyrir Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ

Auglýst eftir hugmyndum fyrir Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands leitar nú að nýstárlegum og hagnýtanlegum hugmyndum fyrir samfélag eða atvinnulíf meðal nemenda og starfsfólks skólans fyrir hin árlegu Vísinda- og nýsköpunarverðlaun skólans. Fólk af öllum fræðasviðum er hvatt til að taka þátt í samkeppninni en verðlaun fyrir fyrsta sætið nema allt að þremur milljónum króna. Skilafrestur hugmynda er 13. apríl.

Umsóknareyðublað

Samkeppnin hefur verið haldin innan skólans í nærri aldarfjórðung en markmið hennar er að laða fram nýsköpunarhugmyndir sem kunna að stuðla að samfélagslegum eða viðskiptalegum ávinningi án tillits til þess hvort hugmyndin hafi fjárhagslegan hagnað að markmiði. 

Veitt eru verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum: 

  • Heilsa og heilbrigði – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
  • Tækni og framfarir – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
  • Samfélag – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
  • Hvatningarverðlaun – Verðlaunafé 500 þ.kr.

Sigurvegari samkeppninnar, sem kemur úr hópi verðlaunahafa í flokkunum fjórum, hlýtur til viðbótar 1,5 m.kr. í verðlaunafé.

Við mat á hugmyndum skoðar dómnefndin einkum nýnæmi og frumleika, útfærslu, samfélagsleg áhrif, m.a. út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og hvort verkefnið sé í samræmi við stefnu skólans og styðji við starfsemi hans.

Frekari upplýsingar um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ má finna á vefsíðu samkeppninnar
 
 

""