Skip to main content
13. mars 2024

Almenn gjaldtaka á bílastæðum við Háskóla Íslands hefst í haust 

Almenn gjaldtaka á bílastæðum við Háskóla Íslands hefst í haust  - á vefsíðu Háskóla Íslands
  • Gjaldtöku verður stillt í hóf
  • Fyrsta skrefið í að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu
  • Skráning bifreiða nauðsynleg
  • Samflot haft með Landspítala og nágrannastofnunum

Háskóli Íslands hefur tekið fyrsta skrefið til að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu með því að innleiða skráningu og gjaldtöku af ökutækjum þeirra sem nýta bílastæði skólans. Þessi breyting tekur gildi 1. september 2024. Gjaldtöku verður stillt í hóf. 

Gjald verður almennt tekið fyrir notkun bílastæða frá kl. 8.00 til 16.00 á virkum dögum. Bílastæðum verður skipt í tvö gjaldsvæði: 

  • Svæði P2 eru valin stæði næst byggingum þar sem alltaf verður tekið gjald líkt og hefur verið í Skeifunni við Aðalbyggingu og við Gimli. Þessum stæðum verður fjölgað og verða þau rúmlega 200 af um 1.700 bílastæðum á háskólasvæðinu. Á meðfylgjandi mynd eru slík svæði merkt með rauðum lit. 
  • Önnur stæði eru í gjaldflokki P3 þar sem einnig verður tekið almennt gjald, en nemendur og starfsfólk geta skráð bifreiðir sínar til að fá heimild til að leggja á þeim stæðum án annarrar þóknunar en hóflegs skráningargjalds. Slík stæði eru merkt bláum lit á myndinni. Unnt verður að afskrá ökutæki hvenær sem er og gildir uppsögn frá og með næsta mánuði á eftir. 

Handhöfum stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða verður eftir sem áður heimilt að leggja ökutæki í gjaldskylt bifreiðastæði án sérstakrar greiðslu skv. gildandi umferðalögum.

Haft hefur verið náið samráð við Landspítalann og aðrar nágrannastofnanir við undirbúning málsins og verður þess m.a. gætt að nemendur og starfsfólk í heilbrigðisgreinum, sem eiga erindi bæði á lóð Háskóla Íslands og Landspítalans, greiði ekki tvisvar skv. gjaldflokki P3.

Þetta verkefni er fyrsta skref HÍ í að hvetja fólk til að ferðast til og frá háskólasvæðinu með vistvænum hætti og er jákvætt framlag til öruggari og umhverfisvænni umferðar við Háskóla Íslands. 

Samhliða innleiðingunni er unnið markvisst að uppbyggingu vistvænna samgöngumáta, s.s. með gerð hjólaskýla og annarrar aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Þá er áætlað að fyrsti leggur Borgarlínu muni liggja um háskólasvæðið og verði tekin í gagnið innan fárra ára. 

Þjónusta við innheimtu og eftirlit með bílastæðum verður boðin út á næstu vikum.

Nýtt fyrirkomulag verður kynnt nánar þegar nær dregur. 
 

Bílastæði á svæði Háskóla Íslands