Skip to main content

Starfsþróun kennara – forysta og ánægja í skólastarfi

Starfsþróun kennara – forysta og ánægja í skólastarfi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. febrúar 2018 13:00 til 16:45
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Nánar 
Léttar veitingar

Starfsþróun kennara, skólastjórnenda og annarra fagstétta í skólum hefur verið lengi til umræðu og er talin lykilatriði til að stuðla að framförum í menntakerfinu. Menntavísindasvið Háskóla Íslands, í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kennarasamband Íslands, boðar til ráðstefnu um þetta mikilvæga mál þar sem markmiðið er að efna til samtals meðal þeirra sem koma að starfsþróun kennara og mikilvægi hennar fyrir framþróun skólastarfs.
 

DAGSKRÁ

13:00 Setning ráðstefnunnar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

13:10 Björk Óttarsdóttir, formaður samstarfsráðs um starfsþróun kennara og skólastjórnenda
– Starfsþróun kennara og skólastjórnenda

13:40 Kennarar og skólastjórnandi segja frá starfsþróunarverkefnum í þeirra skólum

Íris Hrönn Kristinsdóttir, verkefnastjóri þróunarverkefnis í leikskólanum Krógabóli á Akureyri og leikskólakennari
– Málrækt og snjalltækni – Þróunarstarf í leikskóla

Helgi Bragason, hljómfræðikennari og kórstjóri við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
– Starfsþróun og nærsamfélagið

Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri við Oddeyrarskóla á Akureyri
– Lærdómssamfélag sem leið til starfseflingar

Hjördís Þorgeirsdóttir, félagsfræðikennari við Menntaskólann við Sund
– Starfendarannsóknir efla starfsþróun kennara

14:40 Kaffi

15:00 Kari Smith, yfirmaður NAFOL (Nasjonal forskerskole for lærarutdanning) og prófessor við Norwegian University of Science and Technology í Þrándheimi, Noregi
– Stöðugt nám alla starfsævina (e. Learning throughout a professional career)

Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

15:45 Umræður í sal og pallborði

Í pallborði: Björk Óttarsdóttir, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Kristín Jóhannesdóttir, fulltrúi stjórnenda KÍ, Hjördís Þorgeirsdóttir, fulltrúi kennara KÍ, Kari Smith, prófessor við Norwegian University of Science and Technology, Jóhanna Einarsdóttir, prófessor og forseti Menntavísindasviðs HÍ, Birna Svanbjörnsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og fulltrúi háskólanna í samstarfsráði og Þorsteinn Hjartarson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þemu í pallborði
1) Hlutverk samstarfsráðs í starfsþróun – væntingar kennara og skólastjórnenda?
2) Hvert á hlutverk háskóla að vera í starfsþróun?
3) Drifkraftur og hindranir – aðstæður kennara og skólastjórnenda til starfsþróunar og hvaða stuðning vilja þeir?

16:30 Slit ráðstefnunnar, Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ

Ráðstefnustjóri: Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ

Léttar veitingar að lokinni dagskrá

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir en skráning er nauðsynleg, vinsamlegast skráið ykkur HÉR

Ráðstefnunni verður streymt

Viðburðurinn á Facebook

Ráðstefna um starfsþróun kennara Menntavísindasvið Háskóla Íslands, í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kennarasamband Íslands, boðar til ráðstefnu um starfsþróun kennara.

Starfsþróun kennara – forysta og starfsánægja í skólastarfi