Skip to main content

Spjall við fyrrum skiptinema

Spjall við fyrrum skiptinema - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. nóvember 2019 16:00 til 17:00
Hvar 

Stúdentakjallarinn

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ertu að spá í skiptinámi? Nú hefur þú tækifæri til að spyrja fyrrum skiptinema að öllu því sem tengist umsóknarferlinu, vali á skóla, dvölinni og öðru sem þér dettur í hug.

Taktu næsta skref og mættu í opnar umræður í Stúdentakjallaranum. Fulltrúar frá alþjóðanefnd Stúdentaráðs stýra viðburðinum og fulltrúar Skrifstofu alþjóðasamskipta verða á staðnum.

Nemendum gefst tækifæri á að spyrja fyrrum skiptinema spjörunum úr um reynslu þeirra af námsdvöl erlendis.

Spjall við fyrrum skiptinema