Skip to main content

Ræðum í stað þess að rífast: Mikilvægi samskipta fyrir þroska barna og ungmenna.

Ræðum í stað þess að rífast:  Mikilvægi samskipta fyrir þroska barna og ungmenna. - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. febrúar 2018 17:00 til 18:30
Hvar 

Háskólatorg

Litla torg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hrund Þórarins Ingudóttir, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild, og Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við sömu deild, halda erindi um uppeldishætti.

Opið hús og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir

Upptaka af erindinu

Flestir telja foreldrahlutverkið hina mestu áskorun og flókið að ala upp barn í nútímasamfélagi. Öll viljum við standa okkur vel í uppeldishlutverkinu. Í erindi Hrundar og Sigrúnar verður fjallað um uppeldishætti foreldra en fjöldi rannsókna, þar á meðal á Íslandi, bendir til að leiðandi uppeldishættir séu heillavænlegir við að efla þroska og velferð barna og ungmenna. Rætt verður um samskipti foreldra og barna, mikilvægi samveru og samræðna og uppeldissýn foreldra og gefin góð ráð þar að lútandi. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku gesta á fundinum en upptaka af honum verður aðgengileg á vef Háskóla Íslands að fundinum loknum fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Um er að ræða annan fundinn í nýrri fyrirlestraröð sem rektor Háskóla Íslands hleypir af stokkunum á árinu 2018 og ber heitið Háskólinn og samfélagið. Viðfangsefni fyrirlestraraðarinnar verða af ýmsum toga en eiga það sameiginlegt að hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni síðustu misseri. Í fyrstu fræðslufundaröðinni, sem ber heitið Best fyrir börnin, verður velferð barna og ungmenna í brennidepli, með áherslu á andlega líðan, hreyfingu, svefn, læsi, mataræði og samskipti.

Hrund Þórarins Ingudóttir, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild, og Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við sömu deild halda erindi um foreldrahlutverkið, uppeldishætti og samskipti foreldra og barna. 

Ræðum í stað þess að rífast:  Mikilvægi samskipta fyrir þroska barna og ungmenna.