Skip to main content

Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar

Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
29. október 2021 13:30 til 15:30
Hvar 

Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafnsins

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Stofnun Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands, í samvinnu við samráðsvettvanginn Faith for Nature, efna til málþingsins Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar. Þingið verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 29. október 2021 kl. 13:30–15:30. 

Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi með því að smella hér.

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er heiðursgestur málþingsins.

Dagskrá: 

  • Halldór Reynisson verkefnisstjóri: Lotfslagsmál, börnin og framtíðin.

Erindi:

  • Halldór Þorgeirsson, fulltrúi Andlegs þjóðarráðs bahá‘ía á Íslandi. Trú á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
  • Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofunni. Kynning á nýjustu skýrslu IPCC um loftslagsbreytingar.
  • Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild HÍ. Nánar um IPCC skýrsluna: Hörfun jökla og hækkun sjávarstöðu eru afleiðingar loftslagsbreytinga af mannavöldum

Örinnlegg:

  • Tryggvi Felixson, formaður Landverndar. 
  • Hjördís Jónsdóttir, stofnandi Skógræktarfélagsins Ungviður.
  • Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði.
  • Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir, fulltrúi frá Ungum umhverfissinnum.
  • Axel Árnason Njarðvík í umhverfishópi Þjóðkirkjunnar.
  • Áróra Árnadóttir, nýdoktor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands.
  • Gunnar Hersveinn, athafnastjóri hjá Siðmennt.

Málþingsstjóri: Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í Guðfræði- og trúarbragðafræðum við Háskóla Íslands.

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er heiðursgestur málþingsins.

Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar