Skip to main content

Gervigreind, siðferði og samfélag

Gervigreind, siðferði og samfélag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. júní 2023 13:00 til 16:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþing á vegum landsnefndar UNESCO í samvinnu við Háskóla Íslands og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands

Í nóvember 2021 samþykktu 193 aðildarríki á aðalráðstefnu UNESCO Tilmæli um siðferði gervigreindar, þar sem mörkuð voru, í fyrsta sinn, alþjóðlega viðurkennd siðferðileg viðmið um þróun og nýtingu gervigreindartækni og lagður grunnur að leiðarvísi fyrir ábyrga stefnumótun um efnið. Tilmælin hafa það meginmarkmið að standa vörð um mannréttindi og mannlega reisn og stuðla að því að hin nýja tækni verði notuð í þágu alls mannkyns. Á málþinginu verður velt upp margvíslegum spurningum um gervigreind, siðferði og samfélag. Rýnt verður í hvernig gervigreindin er að ryðja sér rúms á öllum sviðum samfélagsins, jafnt á vinnumarkaði sem í háskólastarfi og spurt verður hvernig stjórnvöld, háskólar og atvinnulíf geti brugðist við þeirri þróun.
Málþingið fer fram mánudaginn 5. júní frá kl. 13 til 16.30 í Veröld, Háskóla Íslands, og stendur öllum opið.

Málþingið er einnig í streymi

Dagskrá

13.00 – 13.10 Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, setur málþingið
13.10 – 13.20 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp
13.20 – 13.40 Páll Rafnar Þorsteinsson, verkefnisstjóri við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands
Gervigreind, mannlegt siðferði: Raunverulegar áskoranir
13.40 – 14.00 Yngvi Björnsson, prófessor við Tölvunarfræðideild HR
Útskýranleg gervigreind: hvað er það og hvers vegna?
14.00 – 14:20 Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands
Notkun gervigreindar við stjórnun og nýráðningar: Áskoranir samtímans
Kaffi
14.40 – 14.55 Hafsteinn Einarsson, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Hagnýting á gervigreind í kennslu.
14.55 – 15:10 Sigyn Jónsdóttir, CTO hjá Empower
Að samtvinna gervigreind og fjölbreytileika
15:10 – 15.25 Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar
Persónuvernd og gervigreind
15:25 Pallborð með þátttöku fyrirlesara, Guðmundar Jóhannssonar, samskiptastjóra Símans, Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna, Kolbrúnar Halldórsdóttur, formanns BHM, og Birgis Rafns Þráinssonar, skrifstofustjóra í háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu.
16:00 – 16:15 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, flytur lokaorð

Landsnefnd UNESCO í samvinnu við Háskóla Íslands og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands bjóða til málþings um gervigreind, siðferði og samfélag.

Gervigreind, siðferði og samfélag