Skip to main content

Femínísk heimspeki í dag

Femínísk heimspeki í dag - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. júní 2021 16:00 til 17:30
Hvar 

Árnagarður

Stofa 201

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af útgáfu bókarinnar Handbók Oxford um femíníska heimspeki (e. The Oxford Handbook of Feminist Philosophy, Oxford, 2021), ritstýrðri af Kim Q. Hall og Ástu Kristjönu Sveinsdóttur, efnir Heimspekistofnun Háskóla Íslands til kynningar á bókinni og umræðu um efni hennar. (Smellið hér til að fylgjast með streymi).

Framsögu hafa Ásta Kristjana, Eyja Margrét Brynjarsdóttir, Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, Sigríður Þorgeirsdóttir, og Þorgerður Einarsdóttir. Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum.

Bókin samanstendur af 46 ritgerðum sem gefa góða innsýn í femíníska heimspeki í dag, stöðu hennar, áhrif, og tengsl við aðrar hefðir og strauma. 

Hægt er að nálgast hana í bókabúðum og á netinu.

The Oxford Handbook of Feminist Philosophy.

Femínísk heimspeki í dag