Skip to main content

Er íslenskan góður „bissness“?

Er íslenskan góður „bissness“? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. október 2019 8:00 til 12:50
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Salur 023

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Stefnumót fyrirtækja og fræðasamfélags

Vægi tungumálsins eykst stöðugt innan upplýsingatækni, í samskiptum manna við tölvur og snjalltæki. Í máltækni er unnið með tölvutækni og tungumál að því að þróa kerfi sem geta skilið og talað náttúruleg tungumál. Þannig er stuðlað að notkun talmáls í samskiptum manns og tölvu.

Miðvikudaginn 16. október, kl. 8-13 bjóðum við til stefnumóts fyrirtækja og fræðasamfélags um máltækni í Veröld – húsi Vigdísar, sal 023. Öll velkomin.

Bein útsending frá viðburðinum

Þróun máltækni fyrir íslensku er mikilvægt samstarfsverkefni háskóla og atvinnulífsins, sem hefur það að markmiði að íslenskur almenningur geti talað móðurmálið í samskiptum við tölvur. Þannig sjáum við til þess að tungumálið lifi í stafrænum heimi.

Á ráðstefnunni mætast fræðasamfélagið og fyrirtæki í þeim tilgangi að greina tækifærin sem máltækni fyrir íslensku felur í sér þegar kemur að þjónustu við viðskiptavini. Að ráðstefnunni standa Almannarómur – Miðstöð um máltækni, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Íslandsmiðstöð Evrópuverkefnanna CLARIN og European Language Grid, og Samtök atvinnulífsins.

Dagskrá
8.00 Léttur morgunverður

8.30 Opnunarávörp
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

8.50 Hver er staðan
Eiríkur Rögnvaldsson, landsfulltrúi CLARIN og ELG á Íslandi og prófessor emeritus við HÍ
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms - Miðstöðvar um máltækni

9.10 Nemendur HÍ og HR opna söfnun málsýna meðal almennings með aðstoð Guðna Th. Jóhannessonar, Vigdísar Finnbogadóttur, Lilju Alfreðsdóttur og Halldórs Benjamíns Þorbergssonar

9.20 Tungumál í tækjum
Fundarstjóri: Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ 
Anna Björk Nikulásdóttir, verkefnastjóri Samstarfs um íslenska máltækni og framkvæmdastjóri Grammateks ehf. - Verkfærakista í máltækni - tæki til nýsköpunar
Vilhjálmur Þorsteinsson, Miðeind ehf. - Hver er sætastur? Spurt og svarað á íslensku.
Erik Figueras Torras, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Símans - Vilja viðskiptavinirnir virkilega tala við vélar?
Bente Maegaard, formaður ESFRI Strategy Working Group for Social Science and Humanities, fyrrverandi forstöðumaður Center for sprogteknologi, situr í Fagráði Almannaróms - Miðstöðvar um máltækni - Hvernig nýtist CLARIN ERIC til hugbúnaðarþróunar í atvinnulífinu?
Davíð B. Þórisson, sérfræðilæknir í bráðalækningum, og Matthías Leifsson, hagfræðingur - Raddgreining í heilbrigðisþjónustu

10.15 Kaffi og samlokur

10.45 Íslenska og fjölmiðlar
Fundarstjóri: Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV og Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri Númiðla og Rásar 2 hjá RÚV - Er allt að fara til fjandans - aftur?
Jón Páll Leifsson, verkefnastjóri, Broddi ehf. - Broddi, næsta!
Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingarfræði við HÍ - Frá tali til texta milli mála
Hrafn Loftsson, dósent við tölvunarfræðideild HR - Sjálfvirk samantekt íslensks texta

11.45 Máltækni í fjármálaþjónustu
Fundarstjóri: Sigríður Mogensen, framkvæmdastjóri Hugverkasviðs SI
Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka - Hvernig vilja viðskiptavinir eiga í samskiptum um fjármálin sín?
Eyrún Huld Harðardóttir, markaðsdeild Íslandsbanka - Bankaðu á mannamáli! Virkar máltækni í fjártækni?
Albert G. Jónsson, deildarstjóri framþróunar á einstaklingssviði Landsbankans - Talbankinn
Jón Guðnason, dósent við verkfræðideild HR, Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Tíró - Ritvélar framtíðarinnar

12.50 Ráðstefnuslit

Stefnumót fyrirtækja og fræðasamfélags, miðvikudaginn 16. október kl. 8 - 13 í Veröld – húsi Vigdísar, sal 023.

Er íslenskan góður „bissness“?