Aldarafmæli Stúdentaráðs fagnað
![Aldarafmæli Stúdentaráðs fagnað - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_adalbygging_191030_003.jpg?itok=IYbklGsC)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Stúdentaráð Háskóla Íslands býður til hátíðarhalda í tilefni af aldarafmæli ráðsins. Afmælishátíðin mun fara fram 4. desember í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands en vegna samfélagsástandsins verður beint streymi þaðan kl. 18 fyrir gesti heima í stofu.
Afmælið markar stór tímamót í hagsmunabaráttu stúdenta, sem hefur sett svip sinn á samfélagið í heild sinni frá því að stúdentar gengu fyrst til kosninga í desember árið 1920. Sú staðreynd hvetur SHÍ til dáða og áframhaldandi hagsmunagæslu. Stúdentaráð er um þessar mundir að vinna að heimildaþætti um sögu ráðsins og verður sýnishorn frumsýnt á hátíðinni.
Heiðurgestir eru Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem opnar hátíðina, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, munu einnig ávarpa gesti. Þá mun söngkonan GDRN stíga á svið og Vigdís Hafliðadóttir, fyrrverandi stúdentaráðsliði, flytja uppistand.
Stúdentaráð hlakkar mikið til að fagna sögu ráðsins á afmælisdegi þess og vonast til þess að stúdentar og aðrir landsmenn sameinist í fögnuðinum.
Dagskrá:
18:00 Hátíðin sett
18:05 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
18:15 Stikla úr heimildaþætti
18:20 Isabel Alejandra Diaz, forseti Stúdentaráðs
18:30 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
18:40 GDRN
18:50 Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
19:00 Vigdís Hafliðadóttir uppistand
19:10 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
19:20 GDRN
Stúdentaráð Háskóla Íslands býður til hátíðarhalda í tilefni af aldarafmæli ráðsins. Afmælishátíðin mun fara fram 4. desember í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands en vegna samfélagsástandsins verður beint streymi þaðan kl. 18 fyrir gesti heima í stofu.
![Aldarafmæli Stúdentaráðs fagnað](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/jwxv7.jpg?itok=YcR_HuLz)