Skip to main content

Menningararfur í ljósmyndum

Eitt af viðfangsefnum Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum er greining, rannsóknir og túlkun á ljósmyndum og ljósmyndasöfnum. Í því skyni eru tekin til skoðunar heildstæð ljósmyndasöfn í söfnum, myndasöfn einstakra ljósmyndara og myndasöfn í eigu einstaklinga.

Eitt af þeim söfnum sem tekið hefur verið til skoðunar er myndasafn Tryggva Samúelssonar áhugaljósmyndara sem er varðveitt á Ljósmyndasafni Íslands á Þjóðminjasafni. Greiningarverkefni var í gangi á vegum Sauðfjárseturs á Ströndum og Ljósmyndasafnsins og Rannsóknasetrið tekur þátt í því og hyggst einnig fjalla með fræðilegum hætti um Tryggva og myndasafnið hans. Jafnframt hefur frá árinu 2020 verið í gangi, í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum, safn og menningarmiðstöð í héraðinu, viðamikið verkefni tengt ljósmyndum, söfnun þeirra, varðveislu og miðlun. Það ber titilinn Menningararfur í myndum og m.a. fengið öndvegisstyrk frá Safnasjóði. Þessir aðilar stóðu fyrir útgáfu á bókinni Myndir og minningar af Ströndum á árinu 2022 og hafa einnig sett upp fjölda tímabundinna ljósmyndasýninga, staðið fyrir greiningarverkefnum og fleiri ljósmyndatengdum verkefnum. 

Rannsóknasetur HÍ á Ströndum og Sauðfjársetur á Ströndum stofnuðu í sameiningu Facebookhópinn Gamlar Strandamyndir sem nýttur er til að fá yfirsýn yfir myndir úr héraðinu, miðla þeim og skrásetja og koma þeim í örugga varðveislu.

""
""
""
""